157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[14:28]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú er ég í andsvari við hv. þingmann. (IngD: Já. )Ég ætla að fá að halda mig við það. En svo það sé alveg skýrt: Við ætlum áfram að styrkja varnarmálaskrifstofuna, við ætlum að styrkja CERT-IS, netöryggissveitina okkar. Við ætlum að styrkja ríkislögreglustjóra, við ætlum að styrkja Landhelgisgæsluna og við ætlum að styrkja allar þær grunnstofnanir sem geta komið að vörnum og öryggi landsins, bara þannig að það sé á hreinu. Eins og ég segi, það eru engin trúarbrögð í þessu. Trúarbrögðin eru öryggi og varnir Íslands. Ég skal viðurkenna þau trúarbrögð; að verja Ísland með ráðum og dáð og virkja til þess alla þá þekkingu og alla þá innviði sem eru núna innan okkar góða samfélags og helst efla þá.

Það sem ég myndi vilja spyrja hv. þingmann er, af því að við vitum náttúrlega að Rússar hafa mikið verið að beita fjölþáttaógnum: Af hverju erum við að leggja áherslu á hernaðarógnir? Það er af því að það er m.a. verið að beita fjölþáttaógn í hernaðarlegum tilgangi. Rússar eru að gera það mjög markvisst, eins og við þekkjum, allt frá því að ýta undir netárásir, upplýsingaóreiðu og skemmdarverk í það að valda óöryggi og óvissu innan samfélaga með því að ýta flóttamannastraumi á ákveðna staði o.s.frv. Okkur stafar af því ákveðin ógn. Þessu er líka beitt í hernaðarlegum tilgangi og það er alveg ljóst ef við ætlum að vera samstiga Norðurlandaþjóðunum, sem eru okkur svo kærar, og ég tek undir það sem hefur verið sagt hér að við eigum að efla Norðurlandasamstarfið enn frekar, þá er alveg skýrt að þær eru mjög ófeimnar við að segja að ógnin sé Rússland. Svo þurfum við að hafa varann á okkur þegar kemur að Kínverjum, sérstaklega á norðurslóðum. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann, af því að ég notaði leitarvél til þess að finna þetta en fann ekki: Af hverju er ekki minnst einu orði á Úkraínu? Af hverju er það orð ekki nefnt og af hverju er ekki sagt tvímælalaust að það séu Rússar sem eru ógnin? Af hverju er ekki minnst á Rússland í þessari þjóðaröryggisstefnu Miðflokksins? Mér finnst það skrýtið og ekki í takti við Norðurlandaþjóðirnar. Mér finnst það ekki í takti við NB8-þjóðirnar og finnst það ekki vera í takti við það sem önnur ríki NATO segja alveg hiklaust: Ógnin er Rússland. Við þurfum að berjast við Rússland. Af hverju er þessi feimni af hálfu Miðflokksins við að nefna þetta í þessu plaggi?