157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[14:33]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir ágæta ræðu. Mig langar að spyrja hana út í skilgreininguna á hernaðarógn. Ég held að flestir séu orðnir sammála um að fjölþáttaógnir, „hybrid threats“, netöryggismálin, séu raunverulega ein helsta ógnin hernaðarlega, þ.e. að taka samfélögin niður í gegnum þetta. Þetta er alltaf fyrsta skrefið. Við þekkjum það í Úkraínu að fyrstu dagana var ráðist á raforkukerfið og síðan fylgdu þessar árásir. Í 13. áhersluatriðinu í þingsályktunartillögunni segir:

„Að þróa stofnanaumgjörð varnarmála sem tryggi samhæfingu, skilvirkni, ábyrgð og eftirlit, samhliða því að efla enn frekar samstarf innan stjórnsýslunnar um verkefni á sviði varnar- og öryggismála.“

Hvert er þá vandamálið á sviði varnar- og öryggismála? Hver er skilgreiningin á fjölþáttaógninni, netöryggismálum eða hvað? Mér finnst ágætlega tekið á þessu sem fyrsta skref í þessari vinnu. Ég var varamaður í þessum ágæta starfshópi fyrir hv. þm. okkar Sjálfstæðismanna, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, og tók þátt í töluverðu af þessum fundum. Mér fannst þetta alveg ágætlega skýrt sem fyrsta skref og ég hef séð það þannig að þetta væri bara framhald af þeirri vinnu sem snýr að þessu.

Ég vil líka taka fram varðandi Finna, sem ég hef mikið dálæti á — ég hef reynt að kynna mér vel hvernig þeir takast á við þessi mál. Þeir óskuðu eftir því að vera með öndvegissetur um fjölþáttaógnir í Helsinki sem er sameiginlegur vettvangur Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins sem við mörg hér í þingsal höfum kannski heimsótt í einhverjum tilvikum. (Forseti hringir.) Mér finnst þetta bara fara ágætlega saman í skýrslunni. Gæti hv. þingmaður útskýrt það aðeins betur fyrir mér hvert er þá málið með alla skýrsluna og svo aftur þennan punkt varðandi hernaðarógnina?