stefna í varnar- og öryggismálum.
Herra forseti. Málið virðist þá snúast um hvort það sé til staðar, eins og er núna, varnarmálaskrifstofa, sem var endurvakin, innan utanríkisráðuneytisins (Gripið fram í.) eða það verði síðan aftur stofnuð stofnun sem var lögð af 2010, sem kom kannski inn aftur eftir 2006, (Gripið fram í.) þegar herinn fór, og það samhengi hluta eins og við þekkjum. Já. Ég veit ekki, er þetta grundvallarpunktur í málinu? Þetta er alveg heilmikið mál fyrir okkur. Við þekkjum það, við fórum í mikið átak og settum töluverða fjármuni í að efla CERT-IS fyrir nokkrum árum, þá voru starfsmennirnir tveir, þrír. Ætli það séu ekki 17, 18 starfsmenn í dag. Það sýnir vægið. Það eru stöðugar netárásir á mörgum sviðum, hvort sem það er fjármálakerfið, raforkukerfið, raforkuframleiðslan eða bara hvað sem er. Þetta er alla daga. Þetta er hin stóra ógn raunverulega fyrir hinn vestræna heim. Vandamálið er að vestrænu demókratísku löndin þurfa alltaf að sanna hluti. Þau geta ekki bara sagt að eitthvað sé þannig, það er það sem er svo erfitt. Þetta nýjasta, drónaárásir í Danmörku, á Kastrup og flugvöllum í Danmörku, Gardermoen í Noregi og í Þýskalandi, það er svo erfitt að sanna þetta. Við vitum að drónar fóru inn í Pólland. Við vitum að rússnesku herþoturnar fóru inn í rúmensku lofthelgina og síðan inn í Eistland. Við eigum bara, held ég, að dýpka þetta samtal og ég held að það sé örugglega hægt að ná einhverri niðurstöðu varðandi þennan þátt.
Ég vil líka benda á skýrslu Björns Bjarnasonar frá 2020 sem var unnin fyrir norrænu utanríkisráðherrana þar sem hann fjallar um samvinnu við Norðurlöndin um „cyber security“. Ég hef alltaf lagt gríðarlega áherslu á að það sé vettvangurinn hjá okkur varðandi þetta. (Forseti hringir.) En ég hef greinilega ekki tíma núna til að fara í aðra þætti málsins en geri það kannski í ræðu á eftir.