stefna í varnar- og öryggismálum.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Hv. þingmaður kemur inn á það, og ég tek undir það og hef gert það fyrr í dag, að tengja ekki saman umræðuna um Evrópusambandið og varnar- og öryggismálin og þann þátt. Mér fannst hann gera það ágætlega í þetta skiptið, það er ekki alltaf endilega þannig. En þetta var ágætt núna. Þegar ég var að hlusta á ræðuna þá velti ég aðeins mér — og við sem höfum mikinn áhuga á varnar- og öryggismálum og höfum áhuga á norðurslóðum og því sem þar er að gerast og bara þessum breytingum í alþjóðastjórnmálum sem eru að verða núna — að það eru sjö NATO-ríki af átta þjóðum í Arctic Council, sjö NATO-ríki og síðan Rússland. Þessi ríki hafa myndað Arctic Council og verið með sæti þar. Ef það yrði nú einhvern tímann þannig að Ísland yrði hluti af Evrópusambandinu, er hv. þingmaður ekkert hræddur um það að rödd okkar á þessu svæði, hér á norðurslóðum, minnki? Við þekkjum það og ég fer kannski betur í það á eftir hver áhrif Íslands eru í þessu. Á Norðurlandaráðsþingi núna bara fyrir átta dögum þá fer von der Leyen, sem leiðir nú Evrópusambandið á alþjóðavettvangi, að tala mjög um áherslur á norðurslóðum og í „arctic“-málum. Evrópusambandið er svolítið búið að taka yfir utanríkismálaumræðu Evrópusambandsríkjanna á síðustu tíu, fimmtán árum meira og meira og hún hefur þróast mjög í þessa veru sem við höfum verið að kynnast. Nú er greinilega áherslan sú að Evrópusambandið ætlar að fara að tala meira um norðurslóðir. Er hann ekki hræddur um að rödd okkar í þessum málum, sem við Íslendingar skilgreinum sem eitt af okkar stóru málum, norðurslóðamálunum, myndi minnka ef við værum þar undir? Líka þegar við ræðum varnar- og öryggismál á norðurslóðum, sem er nú stækkandi þáttur í allri umræðu um þessi mál.
(Forseti (IngÞ): Forseti minnir á að þingmálið er íslenska.)