157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[15:11]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að taka undir orð hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur varðandi það að fræða en ekki hræða, það er raunverulega lykilatriði í öllu málinu og almennt þegar við ræðum varnar- og öryggismálin. Það kom mér á óvart að í könnun, ekki svona fræðilegri könnun, sem var í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni fyrir einhverjum vikum þar sem um 8.000 manns tóku þátt, var það ótrúlega stór hluti þjóðarinnar sem óttaðist að það yrði innrás á Íslandi. Ég held að það hafi verið 20–25% sem óttuðust það. Það er gríðarlega mikilvægt þegar við ræðum þessi mál að það snúist um að fræða en ekki hræða. Það rifjaðist upp þegar hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir kom áðan inn á heimsókn Harry S. Truman flugmóðurskipsins upp að Íslandsströndum, sem var að taka þátt í Trident Juncture í framhaldinu haustið 2018, að við hv. þingmenn og hæstv. utanríkisráðherra höfðum tækifæri til að fljúga frá Reykjavíkurflugvelli og lenda á skipinu og kynna okkur þessa starfsemi. Þá hafði ekki komið slíkt skip á þessar slóðir, svona langt upp í Norður- Atlantshafi, í 30 ár frá lokum kalda stríðsins. Þarna fannst mér vera komið mjög skýrt fram hvað væri að gerast en fólk kannski ekki almennt, held ég, hafi áttað sig á því miðað við hvernig við Íslendingar almennt vorum að skynja stöðuna á þeim tímapunkti. Þetta var árið sem sá sem hér stendur byrjaði í Íslandsdeild NATO-þingsins og við vorum farin að verða þess áskynja á þeim fundum erlendis að það væri ekki allt í góðu standi, það sem við vorum að ræða þar.

Við þekkjum það í þessari umræðu, ég get svo sem komið inn á það, ég er ekki með skrifaða ræðu, að það voru mikil vonbrigði í aðdraganda forsetakosninga síðast varðandi þá umræðu sem fór fram um varnar- og öryggismálin og um hið svokallaða hlutleysi þjóðarinnar. Það sem mótaði íslenska lýðveldið gríðarlega mikið var seinni heimsstyrjöldin. Við skulum segja að árin 1940, 1941 og til 1951 þá förum við í gegnum seinni heimsstyrjöldina, við verðum aðilar að NATO, ástandið í Tékkóslóvakíu og uppreisn þar hafði m.a. mikil áhrif og stríðið í Kóreu ýtti mjög undir gerð tvíhliða samnings við Bandaríkin í maí 1951. Kóreustríðið sem byrjaði 1950 hafði mikil áhrif á það sem og það að leyfa bandaríska hermenn á Íslandi. Samkomulagið var fyrst þannig að það yrðu ekki hermenn á Íslandi á friðartímum. Þannig að kalda stríðið, sem stendur síðan í 40 ár, mótar allt þetta umhverfi gríðarlega mikið, mótar raunverulega pólitík á Íslandi, efnahagslega og í öllum atriðum, og mótar þjóðina um áratugaskeið. Það er svolítið eins og við höfum bara gleymt því hvað gerðist á þessum árum og ég mæli með því að allir hv. þingmenn kynni sér aðeins þessa sögu sem er ótrúlega fróðleg, m.a. það sem Valur Ingimundarson prófessor hefur skrifað um þessi mál. Það er gríðarlega mikilvægt.

Það er komið inn á í þessum 13 áherslupunktum það helsta sem þessi vinna hefur gengið út á. Sá sem hér stendur hafði mikla ánægju af að starfa sem varamaður í þessari nefnd og sat nokkra fundi í þessari vinnu. Þetta er á mínu áhugasviði, eins og norðurslóðir og þessir hlutir. Það er margt sem kemur saman í þessu plaggi sem er náttúrlega gríðarlega mikilvægt. Ég man að í umræðu við hæstv. utanríkisráðherra á síðasta kjörtímabili ræddum við þetta líka, m.a. akkúrat þennan þátt sem þetta plagg snýst um, ætli það sé ekki þrjú ár síðan, öðru hvoru megin við þrjú ár. Ég held að ég hafi, þegar hæstv. ráðherra talaði einmitt um að móta varnarmálastefnu, tekið undir þau sjónarmið.

Ég kom áðan inn á punkt 13, að þróa stofnanaumgjörð varnarmála sem tryggi samhæfingu, skilvirkni, ábyrgð og eftirlit, samhliða því að efla enn frekar samstarf innan stjórnsýslunnar um verkefni á sviði varnar- og öryggismála. Við útvistuðum öryggis- og varnarmálum þjóðarinnar á tímum kalda stríðsins með aðildinni að NATO og tvíhliða samningi við Bandaríkin. Það er raunverulega ekki fyrr en kalda stríðinu lýkur að við Íslendingar þurfum að fara að móta svolítið stefnuna, hvernig við viljum tryggja varnir og öryggi landsins, en það er náttúrlega algjört lykilatriði stjórnvalda á hverjum tíma að tryggja öryggi borgaranna. Við erum í rauninni að ræða um algjört lykilatriði í öllum ríkjum heims, ekki síst í smáríkjum eins og Íslandi, hvernig við nálgumst svona verkefni. Það er ekkert sjálfgefið að smáríki eins og Ísland hafi getað skapað þessa stöðu sem við búum við, á svo landfræðilega mikilvægum stað eins og Ísland er, við Íslendingar búum í miðju Atlantshafinu, við þekktum það í seinni heimsstyrjöldinni. Það er spurning hvernig mál munu þróast á næstu árum sem snúa að norðurslóðum og hvert hlutverk Íslendinga verður þar. Þetta er kannski hluti af þessu, herra forseti, maður er svo vanur að tala um þetta bara á ensku, „identity“ þjóðarinnar. (Gripið fram í.) Ímynd, það sem við erum að móta, Íslendingar. Þetta er hluti af því. Þar koma norðurslóðamálin inn af fullum þunga fyrir svona 20–25 árum. Þá byrjar þetta og eftir efnahagshrunið verður þetta einn af stóru punktunum sem snúa að þessum efnum í framhaldinu.

Ég vil fagna því sem hæstv. utanríkisráðherra minntist á áðan, að styrkja þyrlukost Landhelgisgæslunnar og koma upp annarri starfsstöð á Akureyri þar sem raunverulega er allt til staðar í dag. Það þarf ekki mikið að gera til að þetta sé raunhæft vegna þess að það eru allir innviðir til staðar og mannskapur og það er auðvelt að koma þessu fyrir. Ég vonast til að þessi tvíhliða verkefni sem eru boðuð í gegnum 1,5% eftir fundinn í Haag í sumar, 17. júní — ég vonast til að þetta geti verið eitt af verkefnunum sem komu inn þar. Ég fagna því og tel það gríðarlega mikilvægt eins og kom fram áðan, ég held að það hafi verið hv. þm. Sigmar Guðmundsson sem kom inn á þetta, að geta sinnt innri björgunarþjónustu, sinnt miðunum og því sem þar er. Þar komum við inn á leit og björgun í Norður- Atlantshafinu, en hafsvæði sem er næstum því 20 sinnum stærra en Ísland er sinnt frá Íslandi. Okkar hlutverk, að mínu mati, getur svo sannarlega verið þarna í borgaralegri þjónustu og að styrkja þetta.

Svo vil ég koma inn á það að efla rannsóknir í öryggis- og varnarmálum. Um það er þingsályktunartillaga sem sá sem hér stendur hefur lagt fram undanfarin ár. Það er gríðarlega mikilvægt að efla þekkingu í landinu. Það hjálpar okkur varðandi viðnámsþrótt og áfallaþol. Það sem hér er um að ræða snýst allt um það, að efla viðnámsþrótt og áfallaþol samfélagsins með öllum þeim leiðum sem eru mögulegar. Hvernig við bregðumst við er raunverulega okkar helsti styrkur. Þá erum við komin í umræðu um almannavarnakerfið, ríkislögreglustjóra og björgunarsveitirnar og af hverju við þurfum að vera með öflugt raforkukerfi, flutningskerfi raforku, fjarskiptakerfi, vegi og brýr og allt sem snýr að innviðum. Það er það sem styrkir okkur. Reyndar held ég að einn punkturinn enn væri að dreifa fólki almennt betur um landið, út frá öryggismálum þjóðarinnar er ekki gott að við séum öll í borgríkinu hérna á ákveðnum punkti, ef við hugsum þetta til svona lengri tíma. Það er punktur sem ég held að sé gríðarlega mikilvægur.

Það var ánægjulegt, eins og ég kom inn á áðan, að fyrir ekki mörgum árum síðan settum við hér í þinginu fjármagn, ég held að það hafi verið í fjárlögunum 2019, í það að við yrðum þátttakendur í öndvegissetrinu um netöryggismál í Tallinn og öndvegissetrinu í Helsinki sem snýr að fjölþáttaógnum. Þar erum við að byggja upp þekkingu, sendum fólk þangað út sem kemur síðan inn í íslenska stjórnsýslu og þannig virkjast og byggist upp þekking í landinu á þessum atriðum. En ég held að það séu fáir Íslendingar sem átta sig ekki orðið á því hvað fjölþáttaógnirnar eru orðnar gríðarlega erfiðar. (Forseti hringir.) Öll okkar kerfi er undir stöðugum árásum af hendi þeirra.