157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[15:37]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Pawel Bartoszek kom inn á það að Varnarmálastofnun hefði verið lögð af 2010. Nú er það spurning: Var þetta pólitískt á tímum vinstri stjórnar sem hér sat 2009–2013? Var þetta hugsað sem sparnaður? Mat viðkomandi ríkisstjórn það svo að þetta skipti bara ekki máli eða vildi hún draga úr væginu? Það líða síðan ekkert svo mörg ár. Nú verður hæstv. ráðherra málaflokksins að hjálpa mér en mig minnir að varnarmálaskrifstofan hafi komið inn aftur 2018 eða 2019, þannig að það eru ekkert mörg ár sem líða. Það er eitthvað sem heldur áfram í framhaldinu í vinnu nefndarinnar, þingmannanefndarinnar, að ná utan um það hvað gerðist þarna 2010 og síðan, eins og ég kom inn á hér áður, varðandi það þegar herinn fór 2006 frá stöðinni í Keflavík.

Ég kom ekki inn á þennan punkt í ræðu minni en hv. þingmaður kom aðeins inn á það og það er sú gjörbreyting sem er orðin innan Atlantshafsbandalagsins. Ég man fundina í NATO-þinginu 2018, þegar ég var að byrja, en þá voru netöryggismálin afgreidd þannig að einstakar þjóðir myndu bara sjá um þau. Þið verðið bara að sjá um þetta, var sagt. Maður hugsaði: Norðurlöndin munu kannski hjálpa okkur við þetta. Ég vil reyndar alltaf horfa til þeirra varðandi netöryggismálin. En ekki liðu mörg ár þangað til þetta var orðið eitt helsta sviðið innan Atlantshafsbandalagsins, eitt af fimm sviðum, sem eru annars land, sjór og loft, þessi hefðbundnu hernaðarsvið. (Forseti hringir.) En síðan bættist geimurinn við og netöryggismálin sem sýnir að fjölþáttaógnirnar eru orðnar sérstakt svið sem mjög er litið til innan Atlantshafsbandalagsins vegna varna hins vestræna heims.