157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[15:44]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Þessi mál eru mikið rædd þar sem ég kem, hvort sem það er á sameiginlegum þingmannaráðstefnum á vegum Evrópusambandsins um öryggismál, á COSAC-fundum, á fundum hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu eða á þeim tvíhliða fundum sem ég hef sótt. Það er alltaf rætt um mikilvægi þessa samstarfs og þetta er mjög mikið á okkar borðum. Mig langar kannski að segja varðandi lýðræðið: Þetta er stór spurning og mikið álitaefni. En mig langar kannski bara að brýna okkur að því leyti að árið 1944 vorum við ungt og fámennt lýðræðisríki. Það er hluti af okkar sjálfsmynd að við séum ungt og fámennt lýðræðisríki. Við erum ekkert ungt lýðræðisríki lengur. Í alþjóðlegu samhengi og í Evrópu erum við eitt elsta starfandi lýðveldið sem hefur órofna lýðveldissögu. Flest ríki Evrópu voru hernumin af einhverju öðru ríki. Mörg önnur ríki voru undir stjórn kommúnismans. Ef við lítum til þess hver elstu lýðveldisríkin í Evrópu eru þá eru það kannski: San Marínó, Sviss, Ísland, Finnland — þau eru ekki mörg önnur. Við erum líka miklu fjölmennari en við vorum 1944 þannig að sumt af því sem við sögðum þá, þ.e. að við hefðum enga burði til að gera neitt í varnarmálum sem skipti máli, á kannski ekki jafnmikið við nú og þá. Ég brýni það bara fyrir okkur að við höfum þá sjálfsmynd sem við getum staðið undir og ég finn að þar sem við komum og tölum er litið upp til okkar á mörgum sviðum, einmitt þegar kemur að lýðræði og mannréttindum. Fólk lítur á margan hátt á okkur sem fyrirmyndarríki hvað allt það varðar. Við höfum því margt fram að færa og eigum að bera höfuðið hátt.