157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[15:51]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég verð nú að segja að eftir þennan dag er ég bæði bjartsýnni og þakklátari fyrir þá þingmenn sem hafa tekið þátt í þessari umræðu. Mér finnst hún hafa einkennst af ábyrgð, framsýni og samstöðu og mér finnst hún hafa verið innihaldsrík. Það eru margir góðir punktar sem hafa komið hér fram sem ég tel einmitt að hv. utanríkismálanefnd eigi að halda áfram að vinna með en líka, eins og ég segi: Verkefnið minnkar ekkert hjá þverpólitísku þingmannanefndinni sem verður að átta sig á því, af því að það eru nokkur hér inni, að verkefnið er rétt að byrja. Við erum að taka fyrstu skrefin og við þurfum að taka þau saman af því að það er mikið í húfi. Það eru íslenskir hagsmunir okkar allra í húfi.

Við erum langt í frá, virðulegi forseti, eina þjóðin sem er að taka stór skref í að þroska nálgun okkar á öryggis- og varnarmál, síður en svo. Þess vegna er mjög traustvekjandi að ná þessari samstöðu um grundvallarsýn sem kemur fram í þingsályktunartillögunni en líka, eins og nefnt var hér áðan, að sýna að það er samstaða á þingi. Það er samhugur, það er einurð. Það eru út af fyrir sig skýr skilaboð til umheimsins. Það er mikilvægt fyrir mig, af því að ég er búin að kynna að þessi stefna sé í uppsiglingu, að geta sagt að það sé einhugur og einurð og samstaða um að taka þessi mál alvarlega, til þess m.a. að verja íslenska hagsmuni en líka að vera þessi verðugu bandamaður sem við erum og ætlum okkur að vera áfram innan NATO. Það orðtak hefur verið notað, ég hef notað það sjálf og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir líka: Fræða en ekki hræða. Absalút, alltaf að hugsa um það. En við þurfum líka að vera tilbúin en ekki vanbúin. Það er hluti af þessum skrefum sem við erum að taka hér í dag.

Að mínu mati er ljóst að umræða um öryggis- og varnarmál mun halda áfram að aukast á næstu árum. Heimurinn er að breytast hratt. Það hefur verið nefnt hér að það eru ekkert mörg lýðræðisríki í heiminum. Við erum eitt af þeim og hluti af því, eins og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson kom inn á, að efla varnir landsins er — af því að við erum ekkert svo mörg — að verja lýðræðið, að verja hugsjónirnar sem fylgja því að vilja vera lýðræðisþjóð. Það tengist frelsi, það tengist mannréttindum og okkar grundvallargildum sem þjóðar. Heimurinn er að breytast hratt og þá skiptir sköpum að við sem samfélag og við sem þing, Alþingi Íslendinga, getum nálgast þessi viðfangsefni af sívaxandi þroska og yfirveguðu raunsæi og axlað þannig ábyrgð í samfélaginu.

Hver er mikilvægasta öryggisstoð Íslands? Mér var hugsað til þess er ég las fyrsta paragraf varðandi varnir og öryggi Noregs: Að alþjóðalög séu virt og að það þurfi að verja þau og standa með þeim. Það eru okkar helstu skilaboð og mikilvægustu varnir. Ef það er ekki borin virðing fyrir alþjóðalögum, sem við Íslendingar eigum allt okkar undir, þá er voðinn vís. Það verður líka að segja skýrt að landamæri og lögsaga ríkja séu virt. Þetta er allt sem við þurfum að taka inn í okkar mynd. Það er dýrmætt að það hefur verið mikil samstaða um nákvæmlega þessa þætti allan þann tíma sem við Íslendingar höfum farið sjálf með okkar eigin utanríkismál. Það er á ábyrgð okkar að gera okkur grein fyrir því að þetta getur breyst, og hefur jafnvel breyst nú þegar, og er ástæða þess að við erum að ræða stefnuna. Við þessar aðstæður þá þurfa allar þjóðir vini og bandamenn og hvort sem þeir eru — og þá verður að nálgast það fordómalaust — innan NATO, innan Evrópusambandsins eða norðurslóðasamstarfs Norðurlandanna þá skiptir máli að hafa sæti við borðið við ákvarðanatökuna. Ég er hér ekki að tala um Evrópusambandsaðild, þó að ég telji hana skipta miklu máli. Það er þýðingarmikið að við beitum rödd okkar og mætum þar sem er verið að fjalla um þessa grundvallarhagsmuni, að alþjóðalög séu virt, og þar sem verið er að ræða varnir og fleira. Við þurfum að sýna ábyrgð og frumkvæði til að leggja okkar af mörkum og vera þessi trausti bandamaður. Mér finnst það ánægjlegt að það hafi verið rauður þráður í ræðum fólks hér í dag.

Þegar Íslendingar ákváðu að verða fullvalda og sjálfstæð þjóð þá þýddi það að við þyrftum að standa undir því, að sýna einmitt þennan þroska og ábyrgð til jafns við stærri þjóðir. Þótt við breytum ekki öllu um stöðu heimsins í kringum okkur þá er það líka skylda okkar að öðlast nægan skilning á heiminum til þess að geta tekið sem bestar ákvarðanir þegar á reynir. Sá tími — vitið til, það mun reyna á þann tíma og þá er eins gott að við séum tilbúin en ekki vanbúin. Þá er mjög gott að muna að það er of seint að læra heima þegar prófið sjálft er hafið. Það sem við erum að gera hér í dag er að læra heima. Við verðum að vinna saman að því að standast öll þetta stóra mál.

Ég vil stuttlega fara yfir það sem hefur verið rætt um varðandi það sem hér hefur verið nefnt landvinningastefna innan Stjórnarráðsins og að það sé verið að stofna nýjar stofnanir. Ég ætla ekki að leyna því að það er verið að skoða lagafyrirkomulag og stofnanafyrirkomulag. En það er m.a. í höndum þverpólitíska þingmannahópsins að meta það með okkur, með ráðuneytunum, hvernig best sé að haga því. Og þó að umgjörð varnarmála verði styrkt, varnarmálaskrifstofan eða hvað það er, þá þýðir það ekki að það sé gert á kostnað annarra, alls ekki. Það má ekki vera þannig. Við þurfum að tryggja að okkar lykilstofnanir sem njóta virðingar og trausts geti sinnt sínum bestu kjarnaverkefnum sem einnig þarf að styrkja. Ég hef nefnt hér m.a. Landhelgisgæsluna og þyrlukost og fleira sem við þurfum að gera til þess að sinna þeim verkefnum, hvort sem það tengist öryggissvæðinu í Keflavík eða annars staðar á landsbyggðinni.

Núna þegar verkefni sem snúa að varnarmálum fara vaxandi er mikilvægt að huga að því hvernig við skiljum betur á milli stefnumótunar og eftirlits og borgaralegra verkefna og hernaðarlegs samstarfs. Þetta eru allt spurningar sem við þurfum að horfa til. Þá vil ég ítreka að ég mun leggja mikið á mig til þess að ná að halda þessum sameiginlega takti sem hér hefur myndast við mjög mikilvæga umræðu um öryggis- og varnarmál. Ég vil undirstrika það að þegar við erum að skoða þennan ramma, gera nákvæmlega það sem aðrar þjóðir eru að gera, þá þurfum við samstöðu um fjárveitingar. Við þurfum samstöðu um að efla getuna, mannauðinn og innviði. Í þeirri vinnu verða leiðarljósin að vera gagnsæi, það verður að vera skilvirkni og það verður að vera hagkvæmni. Ég vil undirstrika það, til að taka af öll tvímæli, að þó að stefnumótunarvinna og framkvæmd liggi hjá ráðherra sem fer með varnarmál, hjá mér í utanríkis- og varnarmálaráðuneytinu, þá mun öll þessi vinna vera áfram í mjög nánu samstarfi við Alþingi, við ráðuneyti, dómsmálaráðuneytið ekki síst en líka innviðaráðuneytið, fjármálaráðuneytið og fleiri, og aðrar stofnanir sem koma að öllum þessum verkefnum, nú sem fyrr. Ég tel að það veganesti sem er verið að senda héðan úr þessum þingsal í dag sé dýrmætt fyrst og síðast fyrir Ísland.

Ég vil þakka sérstaklega öllum þingmönnum sem hafa tekið þátt í þessum umræðum í dag. Við eigum ekki að vera, og mér finnst gott að heyra það, feimin við að segja hvaðan ógnin stafar. Það eru ótvíræðar ógnir sem steðja að núna. Það er mat NATO-ríkjanna og mat bandalagsríkja okkar og vina að ógnin stafar frá Rússum. Við skulum vera tilbúin til þess að mæta þeim og það er ýmislegt hægt að gera. Af því að hér nefndi ég hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson áðan, þá eru það ekki síst rannsóknir á varnarmálum sem við þurfum að efla okkur í og tengja þær mannauðsmálum, greiningargetu og fleiru. Það er einn af þeim lykilþáttum sem við þurfum að efla okkur í og styrkja. Það er búið að gera margt gott á undanförnum misserum og árum. Við þurfum saman að taka næstu skref í þágu landsins okkar.