157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[16:23]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni kærlega fyrir ræðu sína þar sem hann gerði ágætlega grein fyrir áliti 1. minni hluta. Í upphafi sagði þingmaðurinn að hann væri ekki andsnúinn því að þessar reglur yrðu í einhverjum skilningi rýmkaðar. Þó fannst mér ræðan í megindráttum snúast um að hann væri á móti breytingum. Eins og við vitum er staðan í dag sú að meginreglan er að gæludýr séu bönnuð í fjölbýlishúsum þangað til eitthvað annað kemur í ljós, þangað til að tekin er ákvörðun um að leyfa þau ef tilskilinn fjöldi íbúa sammælist um það. Eins og ég nefndi þegar ég tók þátt í 1. umræðu er ég eindregið þeirrar skoðunar að við eigum að breyta þessu þannig að meginreglan verði að gæludýr séu leyfð nema þau séu bönnuð.

Ég vildi spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála þessu eða hvort hann sé bara í rauninni ósammála þessu grundvallarmarkmiði frumvarpsins. Ef hann er sammála mínu mati þá væri ég til í að heyra af hverju verið er að leggja fram frávísunartillögu frekar en að koma með breytingartillögur í nefndarvinnunni til að koma til móts við eitthvað af þeim sjónarmiðum sem hann nefndi í sinni ræðu.