157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[16:27]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta velfn. (Sigríður Á. Andersen) (M):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 2. minni hluta, en að því stendur sú sem hér stendur, þar sem eru lagðar til nokkrar breytingar á þessu frumvarpi. Ég vil í upphafi nefna það, þó að ég ætli ekki að rekja málið eða umsagnir og umfjöllun í hv. velferðarnefnd um þetta mál, það hefur verið gert ágætlega, að hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson mælti fyrir áliti 1. minni hluta nefndarinnar þar sem lagt er til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar aftur til að betrumbæta málið. Ég tek undir öll sjónarmið sem þar voru reifuð og í sjálfu sér mörg sjónarmið sem komu fram í umsögnum og við umfjöllun og umræður við gesti nefndarinnar. Þar er auðvitað, eins og menn segja, oft margt í mörgu. Ég hef tilhneigingu til að styðja markmið málsins. Það hefur margoft komið fram í mörgum málum hér að þingmenn hafa komið upp og stutt markmið ýmissa mála en samt lagst gegn þeim í atkvæðagreiðslu, jafnvel með nefndarálitum. En það er ekki í þessu tilviki. Ég styð markmið málsins en tel málið ákaflega vanbúið af ýmsum orsökum eins og hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson reifaði og ég ætla ekki að endurtaka.

Ég reyni í þessu nefndaráliti, sem með fylgir breytingartillaga, að gera bragarbót á frumvarpinu þannig að, að mínu mati, flestir geti ágætlega við unað. Auðvitað ekki allir, ég tók eftir mikilli andstöðu frá, hvað á maður að segja, astmasamfélaginu eða þeirra sem tala máli þeirra sem þurfa að lifa við astma og óþol vegna gæludýra. Það er auðvitað ákveðið vandamál. Hins vegar er það auðvitað þannig að slíkir einstaklingar búa í dag í fjölbýlishúsum eða í félagi með öðrum í húsum og hafa að miklu leyti getað gripið til einhverra aðgerða. Aðrir geta bara ekki búið í fjölbýlishúsi, það er eins og það er, og kannski erfitt að koma til móts við að öllu leyti hagsmuni allra í svona málum. En ég tel hins vegar að í frumvarpinu sé gengið of langt í að koma til móts við hagsmuni gæludýraeigenda með því að réttur annarra eigenda er að mínu mati, og ég held að menn séu sammála um það sem hafa lagst gegn þessu frumvarpi, að öllu leyti algerlega fyrir borð borinn.

Svo er annað atriði sem mér finnst líka skipta máli. Frumvarpið víkur frá meginreglum laga um fjöleignarhús í ýmsu tilliti, m.a. um tilskilinn meiri hluta eigenda við töku ákvarðana um hunda- og kattahald og meginreglum laganna um úrræði einstakra eigenda þegar upp kemur ágreiningur í fjöleignarhúsi. Það er rétt að hafa það í huga að ég held að það sé samdóma álit langflestra að lög um fjöleignarhús hafi reynst ákaflega vel í heildina þegar kemur að því að taka á ágreiningi sem óhjákvæmilegt er að komi upp í lífi og tilveru manna sem ákveða að búa saman undir sama þaki. Það er náttúrlega með miklum ólíkindum hversu þrætugjarnir menn geta verið svona almennt. Það er nú bara mannlegt eðli og ekki ætla ég að gera lítið úr því. En ágreining þarf hins vegar á endanum að jafna með einhverjum hætti og lög um fjöleignarhús hafa nýst ákaflega vel til þess. Það er komin mikil reynsla á lögin sem eru skýr um þessar reglur, þ.e. hvernig farið er með ágreining og um skiptingu á ábyrgð sameigenda. Ég held að það sé æskilegt að menn reyni að standa vörð um þá meginreglu sem lögin byggja á í öllu tilliti og þótt að það hafi þurft að breyta lögum um fjöleignarhús af og til í gegnum tíðina hefur alltaf verið við það miðað að halda ákveðinni festu og hafa í heiðri þessar meginreglur um t.d. hvenær þarf samþykki allra, hvenær þarf samþykki tveggja þriðju hluta og hvenær þarf samþykki einfalds meiri hluta við töku ákvarðana, sem sagt hvaða ákvarðanir eru meiri háttar og hvaða ákvarðanir eru minni háttar. Að mínu mati er vikið nokkuð frá þessari meginreglu í þessu frumvarpi.

Í frumvarpinu er það í sjálfu sér viðurkennt að ekki ráði allir við að búa í nábýli við hunda og ketti. En það er afar ómarkviss tilraun gerð til þess í frumvarpinu að reyna að jafna rétt eða koma til móts við þá eigendur sem ekki geta gert það. Ég tel brýnt að tryggja eigendum íbúða í fjöleignarhúsi þann möguleika að koma í veg fyrir að hundar og kettir búi í húsinu þótt meginreglan verði sú að það þurfi ekki fyrirframgefið samþykki. Í anda meðalhófs, eins og hér segir í greinargerð með frumvarpinu, legg ég til með þessari breytingartillögu að með samþykki allra eigenda í fjöleignarhúsi verði hægt að þinglýsa kvöð um bann við gæludýrahaldi á hverja séreign hússins sem þá haldist þrátt fyrir framsal á séreignarhlutum.

Þetta varðar kannski ekki bara lög um fjöleignarhús. Þau lög eru sérlög sem eru ófrávíkjanleg og það er sérstakt með einmitt lög um fjöleignarhús að þau víkja frá þeirri meginreglu að það er samningsfrelsi, almennt ríkir hér samningsfrelsi. Lög um fjöleignarhús eru dæmi um lagabálk sem setur þessu samningsfrelsi skorður, þ.e. almennt geta íbúar í fjöleignarhúsi ekki samið sig frá skýrum ákvæðum laga um fjöleignarhús. Ef menn myndu vilja og allir sammælast um það að vera t.d. ekki með húsfélag í húsinu þá er það ekki hægt af því að lögin eru skýr um það að það verður að vera húsfélag í öllum fjöleignarhúsum. Það sama má segja um alls konar aðra hluti. Ef allir íbúar myndu vilja samþykkja það og allir væru samþykkir því að það þyrfti einhvern annan meiri hluta, öðruvísi meiri hluta en lögin kveða á um, til að taka einhverja tiltekna ákvörðun þá er það ekki heldur hægt. Þess vegna er lagt til með þessari breytingartillögu að það verði sett inn í fjöleignarhúsalögin ákvæði, pósitíft ákvæði, eins og það er kallað, skýrt ákvæði þar sem kveðið er á um að eigendur geti, komi þeir sér saman um það, þinglýst slíkri kvöð á húsið. Ég á ekki von á að þetta verði algengt vegna þess að ef þinglýst hefur verið slíkri kvöð á fjöleignarhús getur verið erfitt að fá henni aflýst. Það getur auðvitað rýrt verðmæti eignarinnar ef það liggur þinglýst kvöð á eigninni sem segir að það megi aldrei vera með hund eða kött í íbúðinni. Það fer bara eftir svona markaðsaðstæðum hverju sinni. Hins vegar tel ég að þetta gæti komið til móts við fólk sem hefur einlægan og einbeittan ásetning, sem er greinilega alveg fullt af fólki, um að búa í húsi þar sem gæludýr eru ekki leyfð. Það verði einhver eftirspurn eftir því, t.d. gætu verktakar sem eru að reisa mörg fjöleignarhús á einhverjum sama reit metið það og vegið hvort það sé markaður fyrir að þinglýsa slíkri kvöð á eitt húsið. Annað dæmi sem mér dettur í hug án þess að ég hafi nokkuð fyrir mér í því er að einhver samtök, t.d. astmasjúklinga eða einhvers fólks sem hræðist gæludýr, gætu sjálf ráðist í byggingu á slíku húsi og þinglýst slíkri kvöð á húsið. Með þessu væri verið að tryggja samningsfrelsi íbúa í fjöleignarhúsum sem mér hefur fundist lögin stundum vera ansi kannski frek gagnvart. Það er þannig, eins og ég lýsti hér áðan, að lög um fjöleignarhús eru ófrávíkjanleg og það er auðvitað undantekning í íslenskri löggjöf að lög séu ófrávíkjanleg, en það eru lög um fjöleignarhús og kannski að því leyti hafa þau reynst svo ágætlega vel til að leysa ágreining. En ég held að í þessum efnum væri það til velfarnaðar fallið að heimila þinglýstar kvaðir á séreignir í fjöleignarhúsum með þessum hætti og af þessum ástæðum.

Í þessum breytingartillögum er líka gert ráð fyrir því að það haldist inni ákvæði sem frumvarpið sjálft gerir ráð fyrir að falli brott, ákvæði um að það þurfi að tilkynna húsfélagi um að inn í húsið flytji hundur eða köttur og að viðkomandi dýr þurfi að vera skráð, það á nú bara við um hunda, þeir eru skráningarskyldir í Reykjavík. Ég held að það séu um 3.000 hundar skráðir en við vitum að hundar eru auðvitað miklu fleiri í Reykjavík. Það verði alveg ótvírætt að hundar sem búa í fjöleignarhúsum verði að vera skráðir. Mér finnst nú bara sjálfsagt að hafa þetta inni þótt frumvarpið myndi ná fram að ganga í meginatriðum. Ég furða mig á því að frumvarpshöfundar hafi ekki gert ráð fyrir því að þetta ákvæði væri áfram inni, þ.e. tilkynningarskylda til húsfélags þannig að aðrir sameigendur viti þá af því að það sé gæludýr í húsinu og í öðru lagi séu þau gæludýr, þeir hundar skráðir. Ég geri tillögu um að þetta ákvæði haldist inni.

Í frumvarpinu er fjallað um úrræði húsfélags til að bregðast við miklum brotum eiganda en það segir hér að ef hundur eða köttur veldur íbúum fjöleignarhúsa verulegum ama, ónæði eða truflunum og eigandi dýrsins ræður ekki bót á því þrátt fyrir áminningu húsfélags, þá geti húsfélagið samþykkt með tveimur þriðju hluta eigenda, bæði miðað við fjölda og eignarhluta, að banna viðkomandi hunda- eða kattahald og gert eiganda að fjarlæga dýrið úr húsinu. Þetta er kannski það ákvæði sem helst kemur til móts við sjónarmið þeirra sem leggjast gegn hunda- og kattahaldi í húsi. En um leið víkur það frá meginreglum laga um fjöleignarhús um að einfalt samþykki myndi þurfa þarna. Ég legg til að hér þurfi bara einfaldan meiri hluta eiganda, bæði miðað við fjölda og eignarhluta, komi upp þessar aðstæður.

Svo segir í frumvarpinu líka að hið sama gildi brjóti eigandi dýrs verulega eða ítrekað gegn skyldum sínum þrátt fyrir áminningar húsfélags. Einnig er talað um að ef allt um þrýtur geti gróf eða ítrekuð brot leitt til þess, eins og segir í frumvarpinu, að húsfélagið beiti úrræðum samkvæmt 55. gr. gagnvart eiganda dýrsins. Þetta er líka breyting, frávik frá meginreglum laga um fjöleignarhús, þ.e. hér er bara gert ráð fyrir því að það sé húsfélagið sem geti beitt þessum úrræðum samkvæmt 55. gr. en ekki líka einstakir eigendur. Í 55. gr. laga um fjöleignarhús er kveðið á um það að ef um allt þrýtur geti einstakur eigandi, ef húsfélagið lætur sig ekki málið varða, beitt þessum úrræðum. Þetta er auðvitað mjög mikilvægt að hafa inni vegna þess að aðstæður geta verið þannig að formaður húsfélagsins er kannski sá sem brýtur svona gróflega af sér og hann lætur undir höfuð leggjast að grípa til þessara úrræða sem mælt er fyrir um að hægt sé að gera. Þá þurfa auðvitað einstakir eigendur að geta gert það.

Ég verð að segja að mér finnst það alveg undarlegt að þrengja svona að rétti eiganda í fjöleignarhúsi, þvert á meginregluna, því að þarna er líka verið að ganga gegn í rauninni stjórnarskrárvörðum eignarrétti eiganda séreignar í fjöleignarhúsi. Ég hef því gert ráð fyrir því í breytingartillögunni að eigendum verði áfram veitt heimild til þessara úrræða, sem eru um útburð. Þetta eru náttúrlega mjög hörð úrræði og ekki gripið til þeirra nema í tilfelli grófra brota. Eftir sem áður stæði það í lögunum, þótt frumvarpið næði fram að ganga óbreytt, að eigendur hafa í rauninni meiri rétt gagnvart brotum ef það er einstaklingur, mannvera, sem er til ama í húsinu heldur en ef gæludýr er í húsinu. Gæludýrið er sem sagt betur varið samkvæmt frumvarpinu heldur en mannvera sem býr í fjöleignarhúsi. Þetta hljóta allir að sjá að gengur trauðla upp.

Ég hef líka gert ráð fyrir því í þessari breytingartillögu að það verði eftir sem áður þannig, eins og er í dag, að húsfélagi sé gert skylt að setja reglur um hunda- og/eða kattahald. Í dag er það þannig að húsfélag getur sett reglur um hunda- og kattahald ef það samþykkir að slíkt dýr búi í húsinu. Nái þetta frumvarp fram að ganga, og jafnvel með breytingartillögu minni, er ekki um það að ræða að húsfélag þurfi að samþykkja það. En þá tel ég hins vegar rétt að í húsfélagi séu í gildi einhverjar reglur um hunda- og kattahald, ekki til þess að banna það heldur bara að það séu reglur, alveg eins og kveðið er á um í dag í lögum um fjöleignarhús þá skyldu húsfélagsins að setja reglur um notkun sameignar, um frið í sameign og þar fram eftir götum. Ég tel að það fari vel á því að það séu líka reglur um dýrahald í þessu húsi.

Þetta eru nú svona í grófum dráttum þær tillögur sem ég legg fram. Varðandi þessar reglur þá vil ég líka nefna að það yrði eftir sem áður þannig að reglur sem húsfélag myndi þurfa að setja um dýrahald yrðu að vera, eins og kveðið er á um í dag, eðlilegar, málefnalegar og á jafnræði reistar.

Virðulegur forseti. Ég held að vilji þingið ekki vísa þessu máli aftur til ríkisstjórnarinnar, til að skoða það aðeins betur hvort ekki megi koma til móts við fleiri sjónarmið en frumvarpið gerir, tel ég að það væri til bóta að samþykkja þessar breytingartillögur sem kynntar eru hér í nefndaráliti mínu um þessi mál. Ég velti því hins vegar fyrir mér, það er kannski ákvörðun seinni tíma, þ.e. við atkvæðagreiðslu að lokinni þessari 2. umræðu, hvort það fari betur á því að greiða atkvæði um frávísunartillöguna fyrst og svo um þessar breytingartillögur mínar eða öfugt. Það er ekki alveg sjálfgefið í hvaða röð virðulegur forseti mun bera upp þessar breytingartillögur, þ.e. frávísunartillöguna annars vegar og svo breytingartillögur, en ég eftirlæt forseta það auðvitað. Ég bendi bara á að það er ekki alveg augljóst hvort væri hentugra fyrir þingið að gera. En að þessu sögðu þá liggja þessar breytingartillögur frammi og ég óska eftir stuðningi við þær. Vilji menn ýta málinu sjálfu áfram, vilji þeir koma meginskilaboðum frumvarpsins hratt í gegnum þingið þá hvet ég þingmenn til að hugleiða það að styðja þessar breytingartillögur, að öðrum kosti eða að fyrra bragði að vísa málinu aftur til ríkisstjórnarinnar. En við sjáum hvernig það fer.