fjöleignarhús.
Virðulegur forseti. Já, þetta er dálítið sérstakt mál og hefur verið til umfjöllunar í hv. velferðarnefnd á þessu þingi og því síðasta. Maður veit að hugurinn sem býr þarna að baki, markmiðið og tilgangurinn, er mjög fallegur. Þetta kemur fyrst og fremst frá hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra í því skyni að rýmka heimildir og snúa hlutunum aðeins við í því hvernig tekið er á þessum málum. En markmiðið er að enn fleiri en nú er geti notið þess að hafa gæludýr hjá sér til stuðnings og félagsskapar og þar fram eftir götunum. Við þekkjum það mörg, og örugglega flest, hvað gæludýr geta gert í því skyni. Þannig að tilgangurinn og framlagningin eru sannarlega af góðum hug.
Eins og komið hefur fram hjá fulltrúum minni hlutans þá eru allir sammála því að það megi rýmka þessar heimildir. En eftir þessar umræður sem hafa verið og umsagnir og samtöl við umsagnaraðila í nefndinni í þennan tíma þá veltir maður því fyrir sér hvort í raun sé verið að skapa ný vandamál. Hvað er það nákvæmlega sem er vandamálið í dag? Þegar þetta var til umfjöllunar og kynnt af hálfu hæstv. ráðherra á sínum tíma þá sveif það yfir og var kynnt sem ein af ástæðunum fyrir því að við ættum að fara þessa leið að þannig værum við að fara sömu leið og Norðurlöndin. En á þessu þingi og í þessari umræðu upp á síðkastið hefur komið í ljós að með þessu frumvarpi á að ganga enn lengra. Eins og hér hefur komið fram þá á að taka í burtu þessa leið húsfélags til að hafa reglur þarna um, sem er grundvallaratriði. Til dæmis á Norðurlöndum, eins og í Danmörku og Finnlandi, þá er ekki fjallað sérstaklega um gæludýrahald í lögum en húsfélög geta kveðið á um það í húsreglum. Þannig er dýrahald heimilt nema reglur húsfélaga kveði á um annað. Það væri hægt að fara einhverja svona millileið þarna er verið að — er tími minn að verða búinn?
(Forseti (BHar): Nei, tími hv. þingmanns er langt frá því liðinn. Ég biðst afsökunar á klukkunni.)
Bara með því að hugsa einhverja þannig leið að almennt séu gæludýr heimil nema að húsfélögin kveði á um annað erum við að stíga ákveðin skref en ekki ganga alla leið. Eins og komið hefur fram og kom mjög skýrt fram í meðferð nefndarinnar þá hafa húseigendur og Húseigendafélagið mjög miklar áhyggjur af því að þarna sé gengið á eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar og fólk þurfi hreinlega að fara að selja ofan af sér eignirnar og muni jafnvel hrökklast úr eignum sínum sem það er í í dag ef þetta opnast allt í einu og húsfélögin hafi ekkert um það að segja nema ef einhver alveg sérstök tilvik koma upp þar sem gæludýr eru til mikils ama og þar fram eftir götunum. En þá er það líka orðið dálítið mikið matsatriði. Það var rætt dálítið í nefndinni hvernig er hægt að — þetta er ekki til að auðvelda það þegar mörg gæludýr, kannski fjöldi gæludýra, hafa safnast inn á eitt heimili. Þetta er ekki til að bæta það þegar það þarf að stíga þar inn. Það er það sem þessi frávísunartillaga byggir á, að ráðuneytið og þeir sem standa að þessu frumvarpi fari aðeins betur í gegnum þessa hluti. Við þurfum ekki að hafa þetta opnara hér en á öðrum Norðurlöndum. Og það úrræðaleysi sem er fyrir hendi í dag verður í raun enn erfiðara með þessu, úrræðaleysið sem blasir við þegar þarf að taka dýr af heimili. Þannig að það þarf að skerpa verulega á því.
Þetta er spurning um heilsu fólks. Þetta er spurning um eignarrétt fólks. Við viljum hafa þetta sem opnast en ekki ganga alveg yfir allt og allt. Það er meginuppleggið í þessari gagnrýni og í þessum tillögum 1. og 2. meiri hluta, að þetta verði skoðað aðeins nánar þannig að það verði ekki ný vandamál búin til. Það kom augljóslega fram í þessari meðferð í nefndinni að þetta getur hæglega kallað á ný vandamál og þetta er það mikið mál í hugum þeirra sem hafa ofnæmi fyrir dýrum, eru hræddir við dýr, að þeirra réttur — réttur fólksins má ekki verða minni en gæludýrsins, ef hægt er að orða það þannig. Réttur hins almenna íbúa verður að vera yfirsterkari því. Við eigum að treysta fólki, því að ég skil svo ósköp vel markmiðið með þessu, við eigum að ganga út frá því að almennt séu gæludýr leyfð en þegar þú flytur í fjölbýlishús eða býrð í fjölbýlishúsi þá vitir þú samt hverjar reglur húsfélagsins á viðkomandi stað eru. Við verðum að treysta fólki sem er valið í stjórn í húsfélögum til að bera skynbragð á þetta. Vilji það setja sér reglur, leyfum það þá, gerum það. Mér fannst líka aðeins óljóst hvert vandamálið er í dag. Jú, jú, við viljum opna þetta þannig að það þurfi ekki að biðja um leyfi og slíkt. En förum einhverja aðeins varkárari leið því að markmiðið er gott og við höfum skilning á því að gæludýr eru dásamleg og við eigum almennt að leyfa þau. En við eigum að taka tillit til nágrannans, taka tillit til fólks, heilsusjónarmiða, eignarréttarsjónarmiða og lífsgæða almennt. Við vonumst til að þessi álit verði tekin til alvarlegrar skoðunar og að málið fái aðeins betri meðferð af hálfu ríkisstjórnarinnar áður en það verður samþykkt því að við viljum ekki búa til ný vandamál.