157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[17:10]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta velfn. (Sigurður Örn Hilmarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innleggið hér. Ég get auðvitað tekið undir það að ákvörðun húsfélags um að fjarlægja dýr er að sjálfsögðu íþyngjandi fyrir eiganda þess. Við þurfum ekkert að eyða löngu máli í það. Ég held að mistökin hér felist í því að setja reglur sem ganga of langt og einmitt banna húsfélagi að grípa utan um hans aðstæður með fyrirbyggjandi hætti, til að mynda bara að ákveða í eitt skipti fyrir öll að hér eru dýr heimiluð, hér eru dýr bönnuð, hvernig svo sem fólk vill hátta þessu. Svo er hægt að ræða hvort það þurfi einfaldan meiri hluta, aukinn meiri hluta eða samþykki allra. Ég bara fæ ekki skilið hvers vegna það þarf að ganga jafnlangt og þetta frumvarp gerir, að taka í burtu þennan rétt. Til að setja upp einhvers konar dæmi mætti nefna að ef félag fólks með bráðaofnæmi fyrir dýrum myndi ráðast í byggingaframkvæmdir og byggja sér fjölbýlishús þá mætti það ekki einu sinni ákveða að í þeirra stigagangi í þeirra blokk yrðu ekki dýr. Löggjafinn er einfaldlega búinn að taka það vald og í því finnst mér vera forræðishyggja.

Ég get haldið þessu fram fullum fetum og viðurkennt það að ákvörðun um að fjarlæga dýrið í tómarúmi slíkra reglna er íþyngjandi. Það sem mér finnst vanta og ég hef áhuga á að heyra aðeins meira um frá hv. þingmanni er einmitt þetta jafnvægi. Ég hef fulla samúð með hagsmunum fólks og þörf fólks til að halda dýr og vilja til að gera það. Það getur einfaldlega verið lífsnauðsynlegt fyrir suma, ég skil það alveg. Mér finnst hins vegar sjálfsagt að mæta því af einhverri sanngirni. Mér finnst ótækt eins og hér er gert að hagsmunum hinna, sem kannski hafa verið í ríkjandi stöðu hvað löggjöfina varðar á undanförnum árum, sé kastað fyrir róða. Þetta er fólk sem hefur verulegan sálfræðilegan ótta gagnvart dýrum eða bráðaofnæmi. Ýmsar aðrar ástæður kunna að gera að verkum að það treystir sér ekki eða getur ekki búið með dýrum. (Forseti hringir.) Hvar er tillitið gagnvart þeirra hagsmunum og af hverju er ekki hægt að finna þetta jafnvægi?