framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025–2029. Með þingsályktunartillögunni er lagt til, með vísan til 33. gr. laga um náttúruvernd, að á næstu fimm árum skuli unnið að friðlýsingu sex svæða til að stuðla að verndun íslenskrar náttúru og framkvæmd alþjóðlegra samninga um náttúruvernd hér á landi. Svæðin eru Goðadalur í Bjarnarfirði, Hengladalir í Ölfusi, Húsey og Eyjasel á Úthéraði, Lauffellsmýrar í Skaftárhreppi, Lambeyrarkvísl og Oddauppsprettur í Borgarfirði og Reykjanes og Þorlákshver við Brúará. Þá verði áfram unnið að friðlýsingu svæða sem eru á náttúruverndaráætlun fyrir árin 2004–2008 og 2009–2013 og hafa ekki verið friðlýst.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Við meðferð málsins hafði nefndin einnig hliðsjón af þeim umsögnum sem bárust við þinglega meðferð málsins á síðasta löggjafarþingi sem og umfjöllun þeirra gesta um málið sem komu fyrir nefndina á því þingi.
Líkt og rakið er í áliti meiri hlutans var þingsályktunartillagan lögð fram á síðasta löggjafarþingi og afgreidd frá umhverfis- og samgöngunefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til síðari umræðu hinn 30. maí síðastliðinn. Álitið má finna á þskj. 608 í máli nr. 267 á því löggjafarþingi. Tillagan er nú lögð fram óbreytt. Til viðbótar við þá umfjöllun sem málið hefur nú fengið hjá nefndinni og þau sjónarmið sem ég mun fara yfir hér á eftir vísar meiri hlutinn til fyrri umfjöllunar og þeirra áherslna sem fram koma í áðurnefndu áliti frá 156. löggjafarþingi.
Til glöggvunar tel ég þó rétt að fara stuttlega yfir þær áherslur meiri hluta nefndarinnar sem fram komu í áliti meiri hlutans um málið á síðasta þingi. Fram komu athugasemdir um að tillagan væri ekki nógu metnaðarfull þegar kemur að náttúruvernd þar sem aðeins væri lagt til að setja sex svæði á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár. Einnig var lýst vonbrigðum með að engin hafsvæði væru á lista framkvæmdaáætlunar náttúruminjaskrár. Í því samhengi var bent á að Ísland hefði undirritað samning Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni þar sem eitt markmiðanna væri að friða 30% svæða sem teldust mikilvæg fyrir líffræðilega fjölbreytni fyrir árið 2030. Þar undir væru land, strendur og haf jarðar. Líkt og fram hefði komið í greinargerð með tillögunni nytu 20% af flatarmáli Íslands verndar og því ljóst að umtalsvert meira þyrfti til að koma en þessi sex svæði svo að markmiði samningsins yrði náð.
Meiri hlutinn vísar að þessu leyti til umfjöllunar í greinargerð tillögunnar þar sem ferli vinnu við tillögu að framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár er rakið. Meiri hlutinn leggur jafnframt áherslu á að framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár er sífelluverkefni samkvæmt lögum. Í 13. gr. laga um náttúruvernd kemur fram að ráðherra gefur út náttúruminjaskrá og leggur fram á Alþingi eigi sjaldnar en á fimm ára fresti tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár. Þannig er ljóst að fleiri svæði munu rata inn á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár. Meiri hlutinn tekur jafnframt undir þá ábendingu ráðgjafarnefndar um náttúruminjaskrá, sem fram kemur í greinargerð tillögunnar, að mikilvægt sé að greina nánar en hefur verið gert hversu hátt hlutfall af þegar friðlýstum svæðum uppfylli markmið samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni. Markmiðið um 30% geri ekki kröfu um að einungis friðlýst svæði nýtist til að uppfylla það heldur megi einnig horfa til annars konar verndarráðstafana. Þessu tengt tekur meiri hlutinn undir umsögn Minjastofnunar um að ákjósanlegt sé að láta skrá fornleifar og eftir atvikum friðuð og friðlýst hús og mannvirki þeirra svæða sem ekki eru þegar skráð, þ.e. Oddeyraruppspretta, Lauffellsmýrar og Húseyjar og Eyjasel, sbr. 15. og 16. gr. laga um menningarminjar, í því skyni að auka þekkingu á þeim svæðum sem lagt er til að færa á náttúruminjaskrá fyrir árin 2025–2029 og jafnvel ýta undir verndargildi þeirra.
Þá fjallaði nefndin um breytingu á afmörkun á verndarsvæði og mótvægisaðgerðir. Í umsögn Landsvirkjunar er sérstaklega vikið að svæðinu Húsey og Eyjaseli á Úthéraði og bent á að svæðið sé staðsett á áhrifasvæði stærstu vatnsaflsvirkjunar landsins, Fljótsdalsstöðvar. Leggur Landsvirkjun áherslu á að við undirbúning nýrra friðlýsinga sé mikilvægt að taka tillit til reksturs aflstöðva, þar með talið mótvægisaðgerða og annarra inngripa sem miði að viðhaldi lífríkis og náttúru. Landsvirkjun leggur til að mörk svæðisins þar sem þau ná út í sjó verði færð inn fyrir ós Jökulsár á Brú og Lagarfljóts, vegna þeirra aðgerða sem líklegt sé að ráðast þurfi í, eða að tryggt verði að friðlýsingarskilmálar svæðisins innihaldi heimild fyrir færslu óssins. Fari svæðið áfram í friðlýsingarferli verði jafnframt að vera skýrt í friðlýsingarskilmálum að takmarkanir friðlýsingar svæðisins komi ekki í veg fyrir mótvægisaðgerðir á svæðinu, svo sem bakkavarnir, mælingar, vöktun og uppgræðslu.
Meiri hlutinn vísar til umfjöllunar í minnisblaði ráðuneytisins hvað þetta varðar. Þar segir að Náttúruverndarstofnun telji mikilvægt að halda mörkum til sjávar óbreyttum og þar með að mögulegar framkvæmdir verði metnar með tilliti til skráningar svæðisins á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár við afgreiðslu umsóknar um framkvæmdaleyfi vegna verkefnisins. Þá sé það mat stofnunarinnar að skráning svæðisins á framkvæmdaáætlun komi ekki í veg fyrir áframhaldandi mótvægisaðgerðir Landsvirkjunar vegna áhrifa Fljótsdalsstöðvar á svæðið. Meiri hlutinn tekur undir þetta mat Náttúruverndarstofnunar.
Í umsögn Orkuveitunnar segir m.a. að Orkuveitan sjái ekkert því til fyrirstöðu að Hengladalir séu á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár, svo framarlega sem tryggt sé að nýting á svæðinu verði heimil með áframhaldandi stefnuborun undir svæðið. Tekið sé mið af gildandi leyfum til nýtingar á jarðhita og sá möguleiki hafður opinn að endurskoða mörk svæðisins sýni jarðhitakortlagning í Hengladölum að þar sé vænlegur jarðhiti. Meiri hlutinn vísar í afstöðu Náttúruverndarstofnunar hvað þetta varðar, að mikilvægt sé að nýting svæðisins hafi ekki neikvæð áhrif á verndargildi þess. Ef farið verði að undirbúa friðlýsingu eða friðun á svæðinu verði það gert í samvinnu við Orkuveituna og aðra hagsmunaaðila til að unnt sé að ná sem bestri samstöðu og samvinnu um hagsmuni svæðisins, bæði út frá vernd náttúrunnar og orkunýtingu.
Nefndin fjallaði að auki um gerð framkvæmdaáætlunar náttúruminjaskrár og endurskoðun laga um náttúruvernd. Í umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands er bent á að um er að ræða fyrstu tillöguna um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár sem lögð er fram síðan lög um náttúruvernd, nr. 60/2013, tóku gildi. Stofnunin bendir á að í ljósi markmiða áðurnefnds samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni, sem miðast við árið 2030, sé óásættanlegt að bíða í fimm ár eftir næstu framkvæmdaáætlun. Meiri hlutinn tekur heils hugar undir það og leggur áherslu á að hafin verði vinna við næsta áfanga framkvæmdaáætlunar sem fyrst. Þá verði unnið markvisst að því að ná markmiði áðurnefnds samnings Sameinuðu þjóðanna um verndun 30% lykilsvæða fyrir líffræðilega fjölbreytni.
Með vísan til þess langa tíma sem það tók að leggja fram fyrstu framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár tekur meiri hlutinn undir þá hvatningu Náttúrufræðistofnunar til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að fram fari mat á því hvaða tækifæri felist í endurskoðun á ákvæðum laga um náttúruvernd sem varða náttúruminjaskrána, með það að markmiði að betur gangi og hraðar að ná fram góðri verndun lykilsvæða í þágu líffræðilegrar fjölbreytni og annarra lykilþátta í náttúru landsins. Meiri hlutinn hvetur til þess að ferlar verði endurskoðaðir með það fyrir augum að efla samráð og fræðslu til að byggja upp traust á milli stjórnvalda og landeigenda, auka samstarf milli stofnana og samráð á fyrri stigum við sveitarfélög og almenning sem og að festa betur í löggjöf og verklag fjölbreyttari leiðir til að ná fram markmiðum um þá verndun sem að er stefnt.
Þá ætla ég að fara stuttlega yfir umfjöllun nefndarinnar um málið á yfirstandandi löggjafarþingi. Nefndin fjallaði um vöktun náttúruverndarsvæða og kostnað. Í umsögn Hafrannsóknastofnunar kom fram það mat stofnunarinnar að áætlaður árlegur heildarrekstrarkostnaður friðlýsinga samkvæmt tillögunni væri vanmetinn. Miklu skipti að vakta náttúruverndarsvæði, aðallega til þess að fylgjast með hvort verndaraðgerðir skili árangri og hvort þörf sé á breytingum friðlýsingar eða öðrum sértækari úrræðum. Bent var á að vöktun fylgdi ávallt kostnaður og rétt að hann væri inni í töflu um kostnaðarmat fyrir framkvæmdaáætlun. Þá var í umsögn Náttúruverndarstofnunar lögð áhersla á að stofnuninni verði tryggt það fjármagn sem kostnaðarmat áætlunarinnar kveði á um. Það sé forsenda þess að árangur náist í framfylgd þingsályktunarinnar og fyrir umsjón og rekstur svæðanna eftir friðlýsingu.
Meiri hlutinn vísar til upplýsinga í minnisblaði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins til nefndarinnar hvað varðar vanmat á rekstrarkostnaði. Er þar vísað til 5. mgr. 35. gr. laga um náttúruvernd sem kveður á um að ráðherra feli Náttúruverndarstofnun að meta nauðsynlegar verndarráðstafanir á svæðum sem til greina kemur að setja á framkvæmdaáætlun og kostnað við þær. Umhverfisstofnun, nú Náttúruverndarstofnun, hafi unnið það mat. Í matinu felist hins vegar ekki kostnaðarmat á lögbundnum verkefnum annarra stofnana, svo sem Náttúrufræðistofnunar, enda sé það ekki hluti þess kostnaðarmats sem lög um náttúruvernd kveði á um. Náttúrufræðistofnun vinni m.a. heildstæða áætlun um vöktun lykilþátta íslenskrar náttúru en vöktunaráætlun fyrir friðlýst svæði skuli vera hluti stjórnunar- og verndaráætlunar viðkomandi svæðis. Kostnaðarmat og rekstraráætlun þeirrar vinnu sé á höndum Náttúrufræðistofnunar. Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þess að Náttúruverndarstofnun verði tryggð fjármögnun þannig að unnt sé að vinna að framgangi framkvæmdaáætlunarinnar og ná árangri.
Þá fjallaði nefndin um vernd hafsvæða og þá gagnrýni á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár að þar sé engin hafsvæði að finna. Meiri hlutinn tekur undir það sjónarmið að fleiri hafsvæði þarfnist verndar og bendir á að í áðurnefndu minnisblaði ráðuneytisins komi fram að vilji stjórnvalda standi til þess að auka þá vernd. Er þar vísað til skýrslu stýrihóps um verndun hafsins sem birt var í júlí 2024. Stýrihópurinn rýndi stjórnkerfi verndunar og nýtingar hafsins og skilaði tillögum um áherslur stjórnvalda hvað varðar vernd og hvaða svæði geti talist til verndarsvæða í hafi. Þá er tekið fram í minnisblaðinu að stefnt sé að því, í samstarfi við atvinnuvegaráðuneytið, að koma tillögunum til framkvæmda.
Nefndin fjallaði að auki um samráð við landeigendur og nýtingu hlunninda á friðlýstum svæðum. Fyrir nefndinni komu fram áhyggjur af friðlýsingarferlinu og gerð friðlýsingarskilmála, t.d. að friðlýst væri í andstöðu við vilja landeigenda eða samráð takmarkað. Þá væri óljóst hvaða áhrif friðlýsing hefði á rétt landeigenda til nýtingar hlunninda, t.d. búfjárbeitar, veiða í ám og vötnum, skotveiði, eggjatöku og dúntöku. Nefndin óskaði upplýsinga hvað þetta varðar hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og áréttar meiri hlutinn það sem fram kemur í minnisblaði ráðuneytisins, að undirbúningur og útfærsla friðlýsinga fer alltaf fram í samstarfi við landeigendur og sveitarfélög auk annarra hagsmunaaðila. Þá er hefðbundin nýting hlunninda heimil hlunnindahafa á friðlýstum svæðum svo framarlega sem nýtingin er sjálfbær. Líkt og segir í áðurnefndu minnisblaði eru takmarkanir á hefðbundinni nýtingu svæða, svo sem beit á friðlýstum svæðum, alla jafna til komnar vegna annarra tilskipana en friðlýsinga, t.d. lögreglutilskipana, beitarbanns sveitarfélags eða landgræðslu. Í tilteknum tilfellum er heimild til nýtingar hlunninda, svo sem eggjatöku og til beitar búfénaðar og smölunar, sérstaklega tiltekin í friðlýsingarskilmálum.
Meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar leggur til tvær breytingar á þingsályktunartillögunni. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar friðlýsingu svæða sem eru á náttúruverndaráætlun fyrir árin 2004–2008 og 2009–2013. Í þingsályktunartillögunni er kveðið á um að áfram verði unnið að friðlýsingu svæða sem eru á náttúruverndaráætlunum fyrir árin 2004–2008 og 2009–2013 og hafa ekki verið friðlýst. Í greinargerð tillögunnar kemur fram að af 15 svæðum á náttúruverndaráætlun 2004–2008 eigi eftir að friðlýsa eða friða 11 svæði, þar á meðal svæðið Álftanes, Akrar og Löngufjörur.
Í umsögnum landeigenda á svæðinu Löngufjörur, áður Norður-Mýrar, og Langárós að Hjörsey, áður Álftanes-Álftárós-Langárós, er því mótmælt að haldið verði áfram að vinna að friðlýsingu þeirra svæða og lagst gegn því að þau séu á náttúruverndaráætlun. Fram kom að samráð stjórnvalda við landeigendur hefði verið ófullnægjandi á öllum stigum málsins. Þá sagði jafnframt að friðlýsing svæðisins eða fyrirhuguð friðlýsing gæti falið í sér takmarkanir á nýtingu landsins sem gæti leitt til skerðingar á stjórnarskrárvörðum eignarrétti landeigenda. Friðlýsing svæða hefði einnig neikvæð áhrif á skipulagsvald sveitarfélagsins.
Meiri hlutinn bendir á að svæðið Löngufjörur er ekki á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár 2025–2029 sem nefndin hefur nú til umfjöllunar. Svæðið Álftanes, Akrar og Löngufjörur er hins vegar á náttúruverndaráætlun 2004–2008. Í umsögn Náttúruverndarstofnunar er bent á að ástæður þess að friðlýsing svæða í eldri náttúruverndaráætlunum hafi ekki náð fram að ganga séu ýmsar en sérstaklega er bent á að mörg svæðin séu mjög stór og nái yfir mikinn fjölda eignarlanda og að ítrekað hafi komið fram andstaða hjá landeigendum og/eða sveitarfélögum við að vinna að friðlýsingu umræddra svæða. Með vísan til þess telji stofnunin þörf á því að endurmeta verndargildi og afmarkanir þeirra svæða sem tilgreind séu í náttúruverndaráætlunum 2004– 2008 og 2009–2013 og hafi ekki verið friðlýst eða friðuð. Þá bendir stofnunin á að í 5. mgr. 13. gr. laga um náttúruvernd sé kveðið á um önnur tækifæri í náttúruvernd en friðlýsingu sem mögulega væri hægt að nýta vegna umræddra svæða. Í minnisblaði ráðuneytisins er tekið undir umsögn Náttúruverndarstofnunar. Meiri hlutinn tekur jafnframt undir þessi sjónarmið stofnunarinnar og leggur til breytingu á 3. mgr. tillögunnar þess efnis að bætt sé við heimild til að vinna að náttúruvernd á svæðunum með öðrum hætti, eins og lög um náttúruvernd heimila. Þar með verður skýrt í þingsályktunartillögunni að áfram skuli unnið að friðlýsingu svæða sem eru á eldri náttúruverndaráætlunum eða unnið að náttúruvernd á þeim með öðrum hætti. Þá áréttar meiri hlutinn mikilvægi samráðs við landeigendur og aðra hagaðila við vinnslu friðlýsinga og annarra verndarráðstafana landsvæða.
Í öðru lagi er lögð til einföld breyting þess efnis að fella brott orðið „fimm“ í 1. mgr. tillögugreinarinnar þar sem nú eru einungis rétt rúm fjögur ár eftir af áætlunartímabilinu.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar til að þingsályktunartillagan verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Guðbrandur Einarsson, Dagur B. Eggertsson, Halla Hrund Logadóttir, Jónína Björk Óskarsdóttir og Sigurður Helgi Pálmason.
Herra forseti. Eins og kemur fram í nefndarálitinu er þetta í fyrsta sinn sem framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár er lögð fram síðan lög um náttúruvernd tóku gildi árið 2013. Við fögnum þessu löngu tímabæra skrefi sem nú er tekið í þágu náttúruverndar á Íslandi sjö árum eftir að fyrstu tillögur Náttúrufræðistofnunar um svæði til að setja á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár komu fram.
Að lokum vil ég þakka hv. umhverfis- og samgöngunefnd fyrir ánægjulegt og gott samstarf í þessu máli eins og öðrum sem hafa verið til umfjöllunar í þeirri ágætu nefnd.