157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.

102. mál
[17:39]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir andsvarið. Landsvirkjun hefur verið að sinna þarna mikilvægri vöktun. Eins og kom fram í ræðu minni áðan var það bæði mat ráðuneytisins og Náttúruverndarstofnunar að mikilvægt væri að halda þessum mörkum til sjávar óbreyttum. En þar kemur líka fram að framkvæmdaáætlunin á ekki að koma í veg fyrir áframhaldandi mótvægisaðgerðir. Friðlýsingarskilmálar verða unnir í góðu samtali við Landsvirkjun og aðra hagaðila, þannig að ég hef ekki áhyggjur af þessu. Ég trúi því að Landsvirkjun verði í góðu sambandi við þau og að þau vinni þessa friðlýsingarskilmála í sameiningu. Einhver líkti þessu við það að í friðuðu húsi sé áfram hægt að skipta um glugga, það þurfi bara að gera það eftir ákveðnum aðferðum. Ég held að þetta sé þannig mál, að það verði ekki bannað að gera þetta heldur þurfi bara að gæta varúðar út af náttúruvernd á þessu svæði.