framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir svarið. Mig langar til að nefna hérna að í umsögn Landsvirkjunar var sérstaklega rætt um að hækkun vatnsyfirborðs fyrir opnun óssins árið 2014 hefði haft neikvæð áhrif á nýtingu og nytjar landeigenda, sem og gróður og fuglalíf, sem er þá væntanlega andstætt friðlýsingunni. Það þarf þá alla vega að vakta það vel að það ástand komi ekki upp.
Mig langar líka að nefna annan punkt sem var nefndur í umsögn Landsvirkjunar. Þar var farið sérstaklega yfir að það væri mikilvægt að friðlýsingunni myndi fylgja fjármagn til innviðauppbyggingar og til rekstrarkostnaðar. Umsögnin vakti athygli okkar í nefndinni á því að í framlagðri tillögu var ekki gert ráð fyrir kostnaði tengdum fyrirhugaðri friðlýsingu. Ég ætla að taka undir með Landsvirkjun; það er sérkennilegt að enginn rekstrarkostnaður fylgi friðlýsingunni og sætir eiginlega furðu því að það er alla vega augljóst í mínum huga að þetta mun hafa í för með sér verulega aukinn kostnað.