framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég þakka Ólafi Adolfssyni fyrir seinna andsvar. Já, ég tek bara undir með hv. þingmanni að því leyti að það er mikilvægt að það sé fjármagn til staðar svo að hægt sé að fylgjast vel með friðlýstum svæðum. Það er hlutverk Náttúruverndarstofnunar að gera þetta mat og fá fjármagn til að þessu sé sinnt, væntanlega í samstarfi við aðrar stofnanir eins og Náttúrufræðistofnun, en eins og er komið inn á gera þau heildstæða áætlun um vöktun lykilþátta í íslenskri náttúru. Vöktunaráætlun fyrir friðlýst svæði skal vera hluti stjórnunar- og verndaráætlunar viðkomandi svæðis. En þetta er bara eitthvað sem við þurfum að fylgja eftir og sjá til þess að það verði áfram veitt fjármagn í að vakta þessi viðkvæmu og mikilvægu svæði.