157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.

102. mál
[17:57]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir gott innlegg hér og áhugaverðar vangaveltur. Við fjölluðum talsvert um mál þeirra sem eru á fyrri framkvæmdaáætlun sem ekki er búið að klára að friða. Eins og þingmaðurinn sagði réttilega voru þær áætlanir ekki til umfjöllunar hjá okkur. Við gerðum okkar með því að hvetja til þess að farið yrði í að endurmeta þá kosti. Vonandi getum við treyst því að það verði í góðu samtali og samráði við landeigendur á svæðinu því að það skiptir mjög miklu máli. Það er einmitt ástæðan fyrir því að þegar farið var af stað með þessa umfjöllun, fyrir þessa framkvæmdaáætlun, voru svæðin sem voru til umfjöllunar 143, en hér erum við aðeins með sex svæði. Það er einmitt vegna þess að m.a. var ekki sátt um að fara í þessar verndunaraðgerðir. Við umfjöllun nefndarinnar kom það líka mjög skýrt í ljós hjá því fólki og fagaðilum sem vinna að gerð verndaráætlana að það sé mjög mikilvægt að efla samtal við fólk og hagaðila á hverju svæði. Oft eru ákveðnar hugmyndir um að það muni annars vegar hafa mjög mikil og alvarleg áhrif fyrir þau að lenda á þessu, sem er svo kannski ekki endilega reyndin, og hins vegar að það sé hægt að fara í mildari aðgerðir til að ná fram sömu markmiðum, sem er að vernda mikilvæg svæði til framtíðar.

Mér finnst þetta með hafið svo áhugavert og er mikil áhugakona um það. Ég ætla að enda þetta á að spyrja einnar spurningar varðandi það: Hvað telur þingmaðurinn að útskýri t.d. brotthvarf humarsins? Hér leggur hann mikla áherslu á að við séum með þetta góða fiskveiðikerfi, sem við erum vissulega með, en ég velti fyrir mér: Er það alveg óskeikult? Hér eru dæmi um ofveiði, eins og t.d. í tilfelli humarsins.