157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.

102. mál
[18:13]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir hans innlegg. Mér finnst rétt að koma hérna upp og árétta að það endar enginn á framkvæmdaáætlun sem vill ekki vera þar. Þetta var margendurtekið í umfjöllun nefndarinnar um málið að það fer enginn á framkvæmdaáætlun nema hann samþykki það í öllu þessu ferli sem er unnið áður en til framkvæmdaáætlunar kemur. Það ferli er ítarlegt og af 143 svæðum erum við hér að fjalla um sex svæði. Mér finnst mikilvægt að það komi fram. Ég hef enga sérstaka spurningu en vildi koma þessu til skila.