157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[18:17]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Virðulegi forseti. Hér er til umræðu frumvarp sem að mínu mati er verulega vanhugsað og þyrfti miklar breytingar á til að það ætti að sinna því sem það boðar. Ég ætla í stuttu máli að fara yfir nokkra þætti og færa rök fyrir því og væri ánægður að fá andsvör. Ég kalla eftir því ef einhver í salnum er til í það.

Frumvarpið sem ríkisstjórnin hefur lagt fram um breytingu á húsaleigulögum er kynnt sem bráðaaðgerð. Hæstv. forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, nefndi þetta bráðaaðgerð sem eigi að bæta húsnæðisöryggi, auka gagnsæi og tryggja sanngjarnt leiguverð. Hver getur verið á móti því? Þó er stundum flagð undir fögru skinni. Þegar litið er á innihaldið í heild sinni blasir við önnur mynd. Þetta frumvarp er ekki til hagsbóta fyrir leigjendur. Það er í raun til höfuðs þeim og sérstaklega ungu fólki sem er að stíga sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði. Ungt fólk stendur nú þegar frammi fyrir einu erfiðasta húsnæðisumhverfi í Evrópu. Leiguverð hefur hækkað langt umfram tekjur, framboðið er lítið og valkostirnir fáir. Þetta frumvarp, sem kynnt er sem lausn, mun í raun gera stöðuna verri, draga úr framboði, hækka verð og ýta venjulegu fólki út af markaði.

Ein helsta breytingin sem frumvarpið boðar er almenn skráningarskylda, sem hljómar sakleysislega en er ákveðinn úlfur í sauðargæru; almenn skráningarskylda allra leigusamninga óháð umfangi eða eðli útleigunnar. Ráðherra kallar þetta aukið gagnsæi og rétt gögn fyrir markaðinn. Í reynd þýðir það nýtt eftirlit, sektarheimildir og aukið regluverk sem nær til allra, jafnvel þeirra sem leigja út eitt herbergi tímabundið. Þetta eru ekki tæknirisar, fjármálasjóðir eða vogunarsjóðir sem eru að leigja út heldur námsmenn, lífeyrisþegar og fjölskyldur sem eru að nýta eignir sínar tímabundið. Þau þurfa að kafa ofan í flókið regluverk, fylla út gögn og standa frammi fyrir sektarákvæðum fyrir formsatriði sem þau mögulega ekki skilja. Margir munu einfaldlega hætta að leigja út til að forðast vandræði. Markaðsfræðin er einföld: Þegar hindranir aukast minnkar framboð og þegar framboð minnkar þá hækkar verð. Frumvarpinu sem er ætlað að lækka leiguverð mun hafa þveröfug áhrif. Herbergi geta horfið af markaði og smærra húsnæði og, eins og markaðslögmálin segja, það sem eftir verður getur hækkað í verði.

Frumvarpið nær ekki aðeins til nýrra samninga heldur leggur það kvaðir á samninga sem nú þegar eru í gildi, öll leigusambönd sem eru í gildi 1. janúar 2026 verða skráningarskyld, jafnvel þótt þau hafi verið gerð löngu áður. Þetta jafngildir afturvirkri lagasetningu sem grefur undan trausti á leikreglum markaðarins. Leigusalar þurfa að endurmeta samninga, fylla út ný skjöl og gæta þess að sinna fimm ára endurnýjunarskyldu þó að þetta séu litlar einingar, mögulega leigðar út tímabundið. Þetta skapar óvissu og kostnað án þess að leigjendur verði nokkuð betur settir. Ekki lækkar leigan og ekki eykst samkeppni á markaði með þessum aðgerðum. Löggjafinn hefur margoft varað við afturvirkni í svona málum. Afturvirknin dregur úr fyrirsjáanleika, trausti og fjárfestingarvilja. Það eru leikreglur markaðarins og það sama gildir hér. Færri vilja taka þátt í markaði sem stjórnvöld hringla stanslaust með með vafasömum hætti, setja á kvaðir, skatt og aðrar hindranir afturvirkt.

Ein galnasta tillagan er um hækkun á leigu en bannað verður að hækka leigu á fyrsta ári samnings. Ráðherra segir þetta tryggja stöðugleika en reynslan frá öðrum löndum sýnir annað. Hvers vegna er reynsla og rannsóknir hunsaðar til að slá pólitískar keilur? Þegar leigusali veit að hann má ekki breyta verði í 12 mánuði hefur hann upphafsverðið það hátt að það dekki ófyrirséðan kostnað, verðbólgu og annað. Þetta hafa meira að segja þingmenn meiri hlutans viðurkennt. Hærra upphafsverð er ígildi einhvers konar tryggingar leigusalans fyrir því sem ég nefndi áðan, ófyrirséðum kostnaði og verðbólgu, en þessi trygging leggst bara á leigjandann, ekki leigusalann. Það er ekki kenning heldur staðreynd sem við sjáum í Þýskalandi, Kanada og víðar, að þar sem settar hafa verið skorður á markaðinn, svokölluð leiguþök eða einhvers konar frystingar eins og hér um ræðir, hafa nýir samningar hækkað í verði og viðhald húsnæðis dregist saman. Afleiðingin er einföld: Nýir leigjendur og ungt fólk lenda verst í því og þurfa að greiða hærri leigu í upphafi og heildarleigugreiðslur verða einfaldlega hærri á öllu leigutímabilinu. Þetta hafa alls konar samtök og stofnanir í samfélaginu margsagt í fjölmiðlum síðustu daga. Dettur einhverjum í hug að leigusalar sem leggja aukalega á vegna ófyrirséðs kostnaðar sem þeir lenda svo kannski ekki í greiði þennan ófyrirséða kostnað til baka að leigu lokinni? Dettur einhverjum það í hug? Hér er einhvers konar pantur settur á sem þarf ekki að borga til baka, en leigusalinn heldur þessum aukakostnaði sem leggst að sjálfsögðu á leigjendur. Það sem átti að vera vernd verður í reynd skattur á nýja leigjendur.

Það sem gerir stöðuna enn alvarlegri er að þetta eru svokallaðar bráðaaðgerðir ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Bráðaaðgerðirnar sem kynntar voru í vor eiga að draga úr spennu á húsnæðismarkaði en í raun munu þær hækka leiguverð og minnka framboð. Þegar skattar og gjöld eru hækkuð á leigusala, þegar hvatar til viðhalds og nýfjárfestinga eru dregnir niður og þegar regluverkið er gert flóknara gerist það alltaf að framboð minnkar og verð hækkar. Þetta er í raun ósvífið. Í viðtali í morgun á Rás 2 kom fram hjá formanni Eflingar að hennar skjólstæðingar, Eflingarfólk, flykktust sífellt meira inn á leigumarkaðinn. Við vitum öll að hennar skjólstæðingar eru ekki þeir sem best borga í landinu og í þeirra vasa ætlar hæstv. forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, að seilast með bráðaaðgerðum sínum. Ríkisstjórnin, sem segist ætla að bæta húsnæðisöryggi, er í raun að búa svo um hnútana að leiguverð hækkar og leiguhúsnæði fækkar. Það er hreinlega skömm og þjóðin á það skilið að fá hreinskilna mynd af mögulegum afleiðingum þessa frumvarps, afleiðingum sem ótrúlega margir í samfélaginu hafa rætt um, forstöðumenn stofnana og forstöðumenn hinna ýmsu félaga. Þegar stjórnvöld ætla sér að leiðrétta markað með eftirliti og skráningum en auka framboð ekki á sama tíma endar sagan alltaf eins. Í besta falli stöðvast hækkunin tímabundið en í versta falli dregst bygging nýrra íbúða saman og svartur leigumarkaður vex.

Þetta þekkjum við. Í Svíþjóð og Hollandi hefur miðstýring á leigumarkaði skapað biðlista sem ná yfir áratugi. Þeir leigjendur sem eru með ódýrar íbúðir halda í þær og enginn hvati er til að byggja nýjar. Þetta er það sama, minna framboð, hærra verð og meiri stjórnsýsla, sem er kannski einmitt það sem ríkisstjórnin boðar í hinum ýmsu málum og kannski beint hennar stefna. Árangursrík húsnæðisstefna byggir á einföldu efnahagslögmáli: Þegar framboð eykst lækkar verð og samkeppni eykst. Í Helsinki hefur stöðug uppbyggingarstefna haldið leiguverði niðri. Í Minneapolis og Fíladelfíu hafa einfaldari byggingarreglur lækkað leigu. Á Íslandi er andstæðan í gangi. Það er of lítið byggt og það sem er byggt selst ekki vegna þess að það er of dýrt eða það vantar bílastæði og allt flækjustig er margfalt meira. Á meðan framboð nær ekki að fylgja fólksfjölgun, ferðamannastraumi og væntingum verður leigumarkaðurinn áfram erfiður og dýr. Skráningarskylda mun engu breyta þar um, engu.

Frumvarpið og meintar bráðaaðgerðir ríkisstjórnarinnar eru dæmi um vanhugsuð vinnubrögð. Það sem átti að skapa öryggi skapar óvissu. Það sem átti að lækka verð hækkar verð. Það sem átti að auka framboð af húsnæði dregur úr því. Ég held að ansi margir stjórnarþingmenn viti þetta en vegna þess að hamrað er á því að hér sé samhent ríkisstjórn þá þora menn ekki að segja sinn rétta hug. Ég hvet þingmenn, sérstaklega í flokknum sem kennir sig við atvinnulífið, Viðreisn, að horfa í eigin barm og þora að ræða þessi mál. Ef stjórnvöld vilja raunverulega bæta stöðu fólks á leigumarkaði þá er lausnin frekar einföld: Byggja meira, byggja rétt, einfalda kerfið og fjarlægja hindranir í stað þess að auka þær. Það er leiðin til að tryggja meira húsnæðisöryggi á Íslandi fyrir unga fólkið, fyrir fjölskyldurnar og þá sem nú þegar berjast í bökkum á leigumarkaði.