157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[18:37]
Horfa

Jónína Björk Óskarsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég verð að segja það að mér bara brá við að hlusta á þessa framsögu hv. þm. Jóns Péturs Zimsens. Þetta er greinilega mikill misskilningur. Við erum að ræða hérna um skráningar leiguíbúða sem kemur ekki á nokkurn hátt leiguverði við. Svo komstu inn á það að ungt fólk ætti erfiðara með að fá leigt, það er bara markaður og eftirspurn sem ráða því hver leigan er og hvort fólk geti farið út á markaðinn.

Svo vitnaðir þú líka í formann Eflingar og talaðir um að Eflingarfólk væri að flytja aftur og aftur. Það er vegna þess að leigan er orðin óhemjuhá og er bara hækkuð eftir „behag“, afsakið, frú forseti. Það eru kannski fjölskyldur með tíu ára börn og börnin eru búin að vera í þremur skólum. Við erum ekki að ræða um það í þessu frumvarpi. Þið eruð alltaf að ræða um: Það vantar greiningar. Okkur vantar greiningar á þessu og hinu og hvernig er með greiningar? Þetta er ekki nógu greint og við getum ekki lagt þetta fram. Hér er einmitt verið að fara fram á að allar íbúðir séu skráðar þannig að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun viti virkilega hve margar leiguíbúðir eru á markaðnum. Það er það sem þetta frumvarp snýst um. Og þetta með að binda í 12 mánuði. Það má vel vera að verðið hækki eitthvað en við sjáum bara til hvaða íbúðir fara út á leigumarkaðinn og hverjar ekki, eftirspurnin ræður því.

En mig langar þá til að spyrja: Ertu, ég ætla ekki að fara inn á ræðuna þína, ósáttur við að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skuli vera farin að skrá íbúðirnar og halda utan um leiguframboð?

(Forseti (KÁB): Forseti vill minna á að ávallt skal vísa til hv. þingmanna í þriðju persónu.)