157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stimpilgjald.

32. mál
[19:16]
Horfa

Flm. (Vilhjálmur Árnason) (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla hér að mæla fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stimpilgjald. Akkúrat þetta frumvarp, það hefur að vísu tekið aðeins breytingum og annað, er núna flutt í 12. skiptið, sem er ekki gott, að þetta sé ekki komið í gegn. En ég hef miklar væntingar til þess að við náum árangri með þetta mál núna. Það eru nokkrar ástæður fyrir því að ég er bjartsýnni nú en oft áður en við erum öll sammála um það hér í þessum þingsal, heyrist mér, og maður heyrir það líka á almenningi, að það sé mikilvægt núna að bregðast við þeim kostnaði sem fylgir því að eignast fasteign og eiga í fasteignaviðskiptum. Það er mjög hart í ári á fasteignamarkaðnum og hluti af vandamálinu á fasteignamarkaði er að það er ekki eðlileg hreyfing á fasteignamarkaðnum, fólk að minnka við sig til að rýmka fyrir því fólki sem vill stækka við sig. Ungt fólk sem er að kaupa jafnvel sína fyrstu eign en sérstaklega þeir sem eru að stækka við sig vilja almennt alls ekki kaupa nýjar íbúðir, vilja kaupa fasteignir sem eru notaðar og eru sem næst sérbýli, annaðhvort sérbýli eða því sem næst og eru þá á viðráðanlegra verði, síðan notaðar og henta oft þörfum fjölskyldunnar betur. Það er oft fólk sem býr orðið tvö ein í koti eftir að börnin fluttu að heiman sem eru þá tilbúin að minnka við sig og jafnvel kaupa nýbyggingu sé hún rétt úr garði gerð í réttu hverfi, jafnvel með bílastæðum, ekki í skuggavarpi í fjölbýlishúsi. Það er oft ekkert mikið sem munar á að fara úr notaðri þokkalegri séreign yfir í nýtt fjölbýli. Það er oft ekki mikill verðmunur. Svo kemur þessi kostnaður ofan á, stimpilgjald. Þetta heitir stimpilgjald en er ekkert annað en stimpilskattur. Þetta er bara skattur á fasteignaviðskipti og það er ekki rétt að hafa íþyngjandi skatt þegar við viljum fá meiri hreyfingu og fá eðlilegri fasteignamarkað. Því tel ég rétt að taka þennan skatt af hið fyrsta. Það hafa verið stigin skref í því, jákvæð skref sem hafa mælst vel fyrir. Fyrst vil ég nefna að stimpilgjöldunum var breytt hér sirka 2013, 2014 þannig að skatturinn var afnuminn af lánsskjölum. Það hjálpaði fólki að endurfjármagna. Það jók samkeppni á lánamarkaði og auðveldaði fólki að aðlaga sitt lánaform aðstæðum hverju sinni, hefur skipt miklu máli. Það hafði þau áhrif að það jókst aðeins samkeppnin á milli lánastofnana og annað, það hefur orðið auðveldara fyrir fólk að breyta lánunum og fara og það hjálpaði líka fólki að bregðast við og fékk það líka til að hugsa aðeins meira um hvernig lán það tæki og pæla meira í því.

Það var líka annað innleitt, það var helmingsafsláttur af stimpilgjöldum fyrir fyrstu kaupendur. Þetta skiptir miklu máli fyrir fyrstu kaupendur sem eru búnir að vera að safna sér fyrir útborgun. Svo eru þau að kaupa fasteign og það kemur allt í einu þetta stimpilgjald inn og það er óvæntur kostnaður. Það gerist náttúrlega oft í öðrum viðskiptum, sérstaklega þegar fólkið fer svo og stækkar við sig, komin börn og annað, kominn mikill kostnaður inn á heimilið, stækkar við heimilið, kannski nýkomin úr námi eða enn þá í námi og kaupir stærri fjölskyldubíl og annað slíkt. Þá er þetta mikilvægur kostnaður, sérstaklega núna þegar vextir eru háir og verðbólgan er frekar að hækka en lækka því miður og aðgengi að lánsfé er takmarkað, í augnablikinu alla vega, og horfurnar fram undan ekkert endilega þær björtustu. Þannig að þá er það þetta.

Ég sagði áðan að ég væri aðeins vongóður. Það er m.a. út af þessari stöðu sem ég lýsi hér, að nú þarf að bregðast við en líka það að í eitt eða tvö skipti sem ég flutti þetta mál þá kom flokkur hæstv. fjármálaráðherra, Viðreisn, og ætlaði að gera betur og afnema stimpilgjöld alveg, af skipum og öllu saman, bara afnema öll stimpilgjöld sem væru til staðar. Ég er svo sem alveg hlynntur því þó að ég hafi sett fókusinn hér á húsnæðismálin og talið meiri líkur á að ná árangri þannig, þannig að ég hvet hæstv. fjármálaráðherra og þingmenn Viðreisnar og alla stjórnarþingmenn að sjálfsögðu líka til að koma með okkur í þá vegferð að afnema stimpilgjöld alfarið af íbúðakaupum og kaupum á bújörðum. En það er eitt af því sem við erum búin að þróa hér, að bæta bújörðum inn í og þannig auðvelda endurnýjun í landbúnaðinum og þar eru oft fasteignir eitt af stóru atriðunum í þessu.

Ég get líka upplýst það hér að ég yrði ekkert hörundsár þó að þetta yrði bara breytingartillaga í bandorminum eða ráðstöfunum. Ríkisstjórnin má alveg koma sjálf með þessa breytingu, bara að hún komi, það er aðalatriðið. Ég held að íbúðamarkaðurinn þurfi á þessu að halda, almenningur, fjölskyldurnar sem fá hverja skattahækkunina á fætur annarri á sig núna frá hæstv. ríkisstjórn sem er smituð af skattasýki, þá er hér góður skattur til að taka af á móti. Eldra fólk sem er að fara að njóta efri áranna og vill minnka við sig, losa um íbúðir fyrir þá sem yngri eru og þurfa stærra húsnæði og annað slíkt — þetta mun létta verulega undir með því þegar akkúrat tekjur þess eru að fara að dragast saman, þegar það er að fara á eftirlaun og annað slíkt þá er þetta nú hálfgerður blóðpeningur. Þetta er nefnilega skattur en ekki gjöld þar sem þetta er allt orðið tölvuvætt og sjálfvirkt og stafrænt og hvað þetta heitir allt saman. Þetta eru engin einhver færsluskjöl og eitthvað og þetta er öðruvísi en var hér áður fyrr, umsýslan í kringum þessi viðskipti. Svo náttúrlega á sama tíma hafa öll gjöld af hálfu sveitarfélaganna, sérstaklega hér á suðvesturhorninu, aukist gríðarlega við fasteignaframkvæmdir og annað, þannig að margt smátt gerir eitt stórt. En þetta eru allt saman stórar tölur samt fyrir fjölskyldurnar.

Ég legg því til við þingheim að vinna þetta mál hratt og örugglega, hvort sem það er að klára þetta frumvarp eða við getum tekið þetta í efnahags- og viðskiptanefnd með öðrum skattalögum sem þar eru og þetta mun liðka fyrir einhverri hreyfingu á fasteignamarkaði. Þetta mun auðvelda fólki að stíga það skref að skipta um húsnæði og fara í hentugra og þetta er auðveldara að hafa eðlilega hreyfingu og verðmyndun og annað slíkt á fasteignamarkaði.

Þeir sem flytja þetta mál með mér eru hv. þingmenn Diljá Mist Einarsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Jón Gunnarsson, Bryndís Haraldsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson og væntum við góðs samstarfs við þingheim um að koma þessu mikilvæga máli hér til afgreiðslu í þinginu, landsmönnum öllum til hagsbóta.