stimpilgjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir framsöguna. Þetta er prýðisgott mál sem ég tel líklegt að ég óski eftir að fá að vera meðflutningsmaður á verði það flutt í 13. skipti að ári. Ég er sammála hinum neikvæðu áhrifum sem stimpilgjaldið hefur og auðvitað er gjaldið ekki í neinu samræmi við þá þjónustu sem veitt er í þessum samningi. En nú er búið að flytja þetta mál 11 sinnum áður, kann hv. þingmaður einhverja skýringu á því hvers vegna svona gott mál hefur ekki hlotið náð fyrir augum þeirra sem stýra dagskrá þingsins og þess sem kemst í gegnum þingflokka ríkisstjórnarflokka hverju sinni undanfarin 11 skipti sem málið hefur verið flutt? Þetta er rannsóknarefni því það er svo borðleggjandi, efnisinnihald málsins. Það er gott, það mun liðka fyrir viðskiptum, sérstaklega mun það gagnast þeim sem eru að fara á milli eigna í svipuðum verðflokki eins og hv. þingmaður lýsti. En það sem ég hef aldrei áttað mig á er hvers vegna þetta mál, í hin 11 skipti sem það hefur verið flutt á fyrri stigum, hefur aldrei hlotið náð fyrir augum þeirra sem ráða, af því að nú veit ég að hv. þingmaður hefur haft betra aðgengi að þeim en ég á undanförnum kjörtímabilum.