157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

varamenn taka þingsæti.

[15:00]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Sigurður Ingi Jóhannsson verði fjarverandi á næstunni. Einnig hafa borist bréf frá Víði Reynissyni og Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur um að þau muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni.

Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi, Jóhann Friðrik Friðriksson, og 1. og 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, Sverrir Bergmann Magnússon og Arna Ír Gunnarsdóttir.

Jóhann Friðrik Friðriksson og Sverrir Bergmann Magnússon hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnir velkomnir til starfa að nýju.