157. löggjafarþing — 30. fundur, 10. nóv. 2025.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 226, um sérúrræði, frá Ingibjörgu Isaksen. Einnig hefur borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 242, um skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini, frá Bryndísi Haraldsdóttur.