157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

[15:12]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Það er sérkennilegt að vera kominn í þessa stöðu, að þessi vinnubrögð séu aftur komin hér á dagskrá sem við ræddum svo oft um síðastliðið vor að væru hv. Alþingi ekki sæmandi, þar sem við erum að tala um mjög gott mál og hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hefur gert vel með að koma með það hér inn. Þetta er búið að fá góða umræðu í þinginu, eins og er sagt, og hér var almenn sátt um þetta mál og samstaða þegar við vorum að ræða það í síðustu viku og greiða atkvæði um það en þingið vildi bara fá aðeins tækifæri til þess að hægt væri að komast aðeins betur að sameiginlegri niðurstöðu um afleiðingarnar og hvernig þessu máli yrði fylgt eftir af því að sveitarfélögin höfðu áhyggjur og það var smá núans við framkvæmdina. Nei, þá kemur meiri hlutinn og tilkynnir niðurstöður fundarins áður en hann fer fram. Það er ekki eins og það sé verið að þjaka þingið á málum frá hæstv. ríkisstjórn. Hefði það farið alveg með þessa ríkisstjórn að leyfa þá alla vega nefndinni að taka einn fund og ræða (Forseti hringir.) málið efnislega áður en þau tilkynna niðurstöðuna fyrir fram og þvinga þetta hérna í gegn? Þetta er stórt og mikilvægt mál sem er mikilvægt að ná samstöðu um (Forseti hringir.) og þá ætlar ríkisstjórnin bara að þvinga það hérna í gegn.