samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Já, okkur brá í brún á fundi velferðarnefndar í morgun og fordæmum í rauninni þessi vinnubrögð. Það er einmitt mergurinn málsins að í þessu áliti sem meiri hlutinn var með tilbúið rétt fyrir fundinn er kveðið á um hvernig eigi að uppfylla samninginn og það sé óskað eftir samtali og samstarfi við sveitarfélögin þar um. Þetta samtal er búið að eiga sér stað, þeir eru búnir að koma inn á nefndarfundi og gera ítarlegar skýrslur en það hefur ekkert verið tekið tillit til þess, ekkert. Við þurfum ekki á einhverjum kaffifundi að halda, við þurfum ekki á einhverju kaffispjalli við sveitarfélögin að halda núna. Við þurfum að sjá fyrir endann á þessu þannig að það sé hægt að uppfylla þær væntingar sem gerðar eru til þessarar lögfestingar svo að þjónustan sé tryggð til handa þeim sem eiga rétt á henni. Og það gerum við í samráði við sveitarfélögin. Þess vegna var líka mjög dapurt (Forseti hringir.) að sjá breytingartillögu minni hlutans fyrir helgi fellda þar sem gert er ráð fyrir endurskoðunarákvæði. Hvert var vandamálið? (Forseti hringir.) Og nú á að boða kaffispjall við sveitarstjórnarfulltrúa.