samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég kem hér upp og ræði fundarstjórn forseta eða ásakanir sem koma á vinnubrögð velferðarnefndar. Verandi fulltrúi í velferðarnefnd vil ég koma upp og ræða aðeins þessa stöðu og þessi vinnubrögð sem ég tel vera mjög góð. Málið fer auðvitað í þetta ferli hér í þingsal og til nefndar aftur og fær þá aðlögun sem kallað er eftir. Það er verið að kalla eftir því að það verði samtal um málið við sveitarfélögin og að við fylgjumst með stöðu mála með þeim og hvetjum þar með ríkisstjórn til að vinna málið áfram. Ég vil bara þakka nefndarmönnum í meiri hluta og minni hluta fyrir störfin í nefndinni. Það er verið að deila um mál og það er auðvitað eðlilegt en það þarf líka að koma þeim áfram. Það er verið að hlusta, það er verið að gera breytingar til að mæta þessum sjónarmiðum, þannig að ég held að þetta séu vinnubrögð sem eru til heilla í nefndinni.