157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

[15:20]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf):

Virðulegur forseti. Hér er um mikla réttarbót að ræða fyrir fatlað fólk í landinu. Málið fékk vandlega umfjöllun í velferðarnefnd á vorþingi og aftur nú á haustþingi. Frumvarpið er óvenjulegt að því leyti að það er ekki samið frá upphafi til enda eins og nánast öll stjórnarfrumvörp í ráðuneyti. Hér er þvert á móti verið að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hér er Alþingi loksins að setja í lög samning sem íslensk stjórnvöld samþykktu fyrir tæpum 20 árum og í raun og veru er unnið eftir markmiðum hans í fjölda mála eftir það.