157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

[15:24]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Hér segja þingmenn að þetta sé spurning um vinnubrögð og hér sé ekki verið að kostnaðarmeta lögfestingu þessa samnings. Það segir samt í frumvarpinu að ekki sé gert ráð fyrir að frumvarpið hafi áhrif á fjárhag sveitarfélaga umfram það sem nú þegar leiðir af skyldu sveitarfélaga til að tryggja réttindi fatlaðs fólks. Það er eðlilegt að það ríki tortryggni milli ríkis og sveitarfélaga hvað varðar þennan málaflokk. Það er ekki eins og þessi málaflokkur hafi verið að færast núna til sveitarfélaganna. Það er búin að vera eilíf barátta á milli ríkis og sveitarfélaga um fjármuni sem eiga að renna til málaflokksins og það er ekki við núverandi meiri hluta að sakast að sá ágreiningur hafi verið til staðar. Hann er búinn að ríkja allan þennan tíma, upp á milljarða. Staðan er hins vegar sú að flest af því sem fatlað fólk þarf að njóta er þegar komið fram, þannig að ég sé ekki — ég mun glaður samþykkja að þessi samningur verði lögfestur og við eigum að vera hreykin af því. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)