samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegi forseti. Þetta er áhugaverð umræða. Ég vil byrja á því að fagna því sérstaklega sem hér kemur fram að þingmenn meiri og minni hluta styðja lögfestingu samningsins og það verður gleðilegt þegar þingmenn fá tækifæri síðar í vikunni að greiða atkvæði með því að lögfesta samninginn og ég reikna með víðtækum stuðningi við þetta góða mál. Hér undir fundarstjórn forseta erum við aðeins að ræða vinnubrögð. Það var alveg skýrt í síðustu viku að óskað var eftir að þetta mál færi til nefndar milli 2. og 3. umræðu. Það var gert. Sá nefndarfundur fór fram í morgun. (Gripið fram í.) Umræðan í síðustu viku sneri einmitt að því að eiga í góðu samtali við sveitarfélögin um hvaða áhrif svona samningur hefur og áframhaldandi vinnu hans. Ég heyri það frá nefndarmönnum að það er komið inn í nefndarálitið að það verður áframhaldandi gott samtal ríkisstjórnar og sveitarfélaganna, það mun halda áfram um þetta mál. Hv. þingflokksformaður Miðflokksins gerir einhverjar athugasemdir varðandi það að áfram á að vinna með samninginn í samskiptum ríkis og sveitarfélaga. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að við erum að skuldbinda okkur til að þessi samningur verði tekinn til greina við allar ákvarðanir ríkis og sveitarfélaga hér eftir. Þú ert aldrei búinn að uppfylla samninginn að fullu (Forseti hringir.) heldur ætlum við að hafa réttindi fatlaðs fólks sem okkar gleraugu þegar (Forseti hringir.) við afgreiðum stjórnvaldsákvarðanir, hvort sem það eru lög eða ákvarðanir sveitarfélaga. Ég fagna þessu, (Forseti hringir.) hér eru góð vinnubrögð og greinilega góður stuðningur við málið.