157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

[15:29]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Frú forseti. Eftir að hafa lesið póst frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu þar sem þau lýsa yfir fullum stuðningi við lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og hlustað síðan á athugasemdir minni hlutans þá finnst mér í rauninni ótrúlegt að vera í þeirri stöðu að geta ekki unnið málið áfram, sérstaklega í ljósi þess að meiri hlutinn í nefndinni hefur hlustað á þessar athugasemdir og kallað eftir því og beint því til ríkisstjórnarinnar að vera í nánu samstarfi við sveitarfélögin til að uppfylla samninginn og ákvæði samningsins í einu og öllu. Ég get ekki betur séð en að meiri hlutinn hafi komið til móts við áhyggjur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og fleiri sveitarfélaga og finnst það í rauninni vera svolítið dökkur blettur á umræðu um þetta mikilvæga og góða mál hvernig komið er fyrir hér í fundarstjórn.