samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara í forsögu málsins en ef einhver kemur til móts við einhvern þá er það ekki vegna þess að viðkomandi segir: Ég er búin að koma til móts við þig og hér er komin niðurstaða. Þetta virkar ekki þannig. Og af því að hv. þm. Guðbrandi Einarssyni hefur verið sérstaklega hrósað fyrir það hvernig hann stýrir nefnd þá vil ég samt vekja athygli á því að það var undir forystu hans flokks sem málaflokkurinn fatlað fólk var fluttur frá ríki til sveitarfélaga. Það var í tíð Jóhönnustjórnarinnar. Þar var því miður ekki skoðaður nógu vel fjárhagslegi þátturinn. Samt vildu allir sem að málinu komu gera allt til að gera þann málaflokk betri. Það er ekki boðlegt að reyna að snúa þessu upp í það að annaðhvort séu menn fylgjandi innihaldi samningsins eða ekki (Forseti hringir.) þegar menn benda á hið augljósa, að sporin hræði og menn vilji hlusta á þá sem þekkja málin best (Forseti hringir.) og, virðulegi forseti, sem þekkir það auðvitað mjög vel, vísa líka til þess hvað hefur gerst og við viljum ekki láta gerast aftur.