samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Hv. formaður þingflokks Samfylkingarinnar kom upp undir þessum dagskrárlið og lét að því liggja að ég væri að gera athugasemdir við að hv. velferðarnefnd hefði við 3. umræðu lagt það til að hefja samtal við sveitarfélögin. Ég gerði ekkert slíkt. Það er rétt að geta þess að sveitarfélögin sjálf, eða samtök þeirra, hafa óskað eftir því að það samtal fari fram áður en lögfestingin fer fram. Ég er hins vegar að benda á það og geri athugasemd við að það er ekki fyrr en í 3. umræðu og undir meðferð málsins í hv. velferðarnefnd að málinu var snúið á hvolf og það er fullyrt hér, svo sem eins og menn hafa verið að spyrja um, að samningurinn sjálfur væri ekki tilbúinn fyrir lögfestingu. Það er fullyrt í nýju nefndaráliti meiri hluta nefndarinnar að fram þurfi að fara samtal um hvernig megi uppfylla skyldur samningsins. Það er það (Forseti hringir.) sem er ekki boðlegt að komi fram hér undir meðferð nefndarinnar við 3. umræðu.