samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Mér er alveg ómögulegt að skilja af hverju hv. þingmenn stjórnarflokkanna vilja ekki taka þetta samtal við sveitarfélögin áður en málið er samþykkt. Við samþykkt máls um skattahækkanir á veiddan afla á síðasta vori voru á þriðja tug sveitarfélaga sem ítrekað vöruðu við því að kostnaðarmatið hefði ekki farið fram og höfðu miklar áhyggjur af þeim kostnaði sem myndi færast á sveitarfélögin sem áhrif af því máli. Í frumvarpinu var fullyrt að engin áhrif yrðu á sveitarfélögin, það var kostnaðarmatið þá, engin áhrif og stjórnarþingmenn töldu enga þörf á því að fara í nokkra vinnu við að kostnaðarmeta þetta. Nú eru staðreyndirnar farnar að blasa við. Uppsagnir víða um land, boðaður er meiri samdráttur með tilheyrandi áhrifum á sveitarfélögin, nefnilega (Forseti (ÞSv): Er verið að ræða um fundarstjórn forseta? ) nákvæmlega það sem var varað við. (Forseti hringir.) Hér erum við að biðja um að þetta samtal eigi sér stað, að málið sé vandað. Það er enginn ágreiningur um þetta mál. Þetta snýst fyrst og fremst um að þetta samtal eigi sér stað, (Forseti hringir.) að þingið sýni þá almennu kurteisi gagnvart borgurunum í landinu og sveitarstjórnarstiginu að virða það viðlits, hlusta á þá, tala við þá og komast svo að niðurstöðu.
(Forseti (ÞSv): Forseti þreytist ekki á að minna hv. þingmenn á að ræðutíminn um fundarstjórn forseta er heil ein mínúta, hvorki meira né minna.)