varnarsamningar Íslands og Evrópusambandsins.
Frú forseti. Hv. þingmenn utanríkismálanefndar hafa nú fengið afhentan samning Íslands og Evrópusambandsins í varnarmálum. Þessi samningur er yfirgripsmikill og nær allt frá samfélagsmiðlum og út í geim. Það fylgir sögunni að fulltrúar allra Evrópusambandsríkja hafi nú samþykkt þennan samning. Engu að síður er látið fylgja sögunni einnig að við megum ekki ræða hann, um hann skuli ríkja trúnaður en til stendur að staðfesta samninginn í ráðinu hinn 13. nóvember næstkomandi, næsta fimmtudag, og undirrita hann svo við hátíðlega athöfn væntanlega þremur dögum seinna, 16. nóvember. Hvernig stendur á því að hæstv. utanríkisráðherra, ef sú er raunin, ætlast til þess að það sé gengið frá þessum samningi, varnarsamningi Íslands og Evrópusambandsins, hann staðfestur og undirritaður án þess að Alþingi fái að ræða drögin og án þess að almenningur á Íslandi sé upplýstur um innihaldið fyrr en það er orðinn hlutur?
Það er nefnt að Evrópusambandið hafi gert sams konar samninga við önnur ríki, Suður-Kóreu, Moldóvu, Kanada og fleiri. Ég skal ekkert segja um það hvort það eru raunverulega sams konar samningar en í öllu falli er ljóst að þau ríki eru ekki í sömu stöðu og Ísland. Það eru ekki herlaus ríki og það eru ekki ríki með sams konar tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin og Ísland hefur. Í svona stóru máli, er ekki eðlileg krafa Alþingis og raunar almennings að fá að ræða þetta mál áður en hæstv. utanríkisráðherra eða fulltrúar hans ganga frá þessu og þetta verður orðinn hlutur?