varnarsamningur Íslands og Evrópusambandsins.
Virðulegi forseti. Ég fagna áhuga hv. þingmanns á varnar- og öryggismálum. En ég vil líka hvetja hv. þingmann til þess að fara vel yfir stöðuna og hugsa ekki að það sé bara Evrópusambandið sem við erum að semja við til að tryggja íslenska hagsmuni, íslenskt öryggi, íslenskar varnir. Ég man ekki, mig rekur ekki minni til þess, að sama krafa hafi verið uppi þegar við gerðum tvíhliða samning sem er svipaðs eðlis og þessi við Þjóðverja, þegar við gerðum tvíhliða samning við Finnland um daginn. Þá var þetta ekki rakið hér. En það kemur alltaf upp þessi taugaveiklun þegar Evrópusambandið er annars vegar. Ég get fullvissað hv. þingmann — sem vel að merkja á að vera búinn að fá tækifæri a.m.k. þrisvar sinnum í utanríkismálanefnd til að fara yfir þetta því að við höfum passað upp á það markvisst að utanríkismálanefnd hafi verið upplýst um þetta mál — að við erum fyrst og síðast að tryggja íslenska hagsmuni á þessum tímum. Já, ég og hv. þingmaður erum svo sannarlega sammála um það að tvær meginstoðir okkar Íslendinga eru stofnaðildin að NATO sem við bárum gæfu til að gera og það var framsýnt fólk þá í stjórnmálum sem þorði að tryggja fullveldi með því að eiga sæti við borðið og já, við gerðum tvíhliða samning, varnarsamning 1951, við Bandaríkin. En við erum að gera nákvæmlega það sama og aðrar vinaþjóðir okkar, Noregur, Bretland, Kanada, Japan og fleiri þjóðir sem eru að gera slíka samninga. Við erum að treysta öryggi og varnir Íslands, tryggja það að við Íslendingar, m.a. nýsköpunarfyrirtæki, eigi aðgang að þeim sjóði sem verið er að fjárfesta í fyrir öryggi og varnir Evrópu.
Ég þakka fyrir þessa fyrirspurn. Ég er alveg til í að taka umræðu um þessa samstarfsyfirlýsingu frekar. Utanríkismálanefnd hefur verið upplýst um þetta, þetta hefur verið hátturinn á og ég er meira en tilbúin til að ræða varnar- og öryggismál og ég satt best að segja saknaði hv. þingmanns í umræðunni um daginn um varnar- og öryggismál.