157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

varnarsamningur Íslands og Evrópusambandsins.

[15:42]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Alltaf sama sagan, endurteknir frasar, engin svör og hirðljósmyndarinn tekur myndir til að geta síðan deilt samfélagsmiðlafærslum með frösum hæstv. utanríkisráðherra. Ég vil fá svör. Ég vil fá svör við spurningu sem varðar mál sem hlýtur að vera alvörumál í huga hæstv. ráðherra, varnarsamning Íslands og Evrópusambandsins sem, eins og ég nefndi áðan, er yfirgripsmikill. En hversu mikið má ég ræða þennan samning ef það er krafa hæstv. ráðherra að um hann ríki trúnaður þar til búið er að undirrita hann? Hvað má segja mikið um samninginn? Það var nefnilega ekki að ástæðulausu að ég spurði hæstv. ráðherra ekki út í þetta á utanríkismálanefndarfundi í morgun vegna þess að ég vildi ekki að hvaða svör sem þar kæmu fram yrðu síðan þess eðlis fyrir vikið — það var getið um sérstakan trúnað á þeim fundi — að ég mætti ekki hafa þau eftir og þar með væri búið að koma í veg fyrir að ég gæti sagt nokkurn skapaðan hlut um þetta. Það er löngu tímabært að draga úr þessari ofnotkun trúnaðarákvæðisins í utanríkismálanefnd og sérstaklega þegar það varðar stór mál eins og framtíðarvarnarsamstarf Íslands. Til að mynda vitum við enn ekki hvort (Forseti hringir.) að einhverju leyti hafi verið litið til þess hvort einhver áhrif yrðu af þessu á varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna.