varnarsamningur Íslands og Evrópusambandsins.
Virðulegi forseti. Ég ætla að árétta það sem ég sagði fyrr í dag, m.a. á fundi hjá utanríkismálanefnd, sem er að yfirlýsingin er ekki lagalega bindandi heldur áréttar pólitískan vilja til samstarfs, m.a. til þess að tryggja öryggi og varnir Íslendinga. Hvað hafa Bandaríkjamenn verið að segja við okkur? Elsku vinir okkar í Evrópu, farið og axlið meiri ábyrgð á okkar eigin vörnum. Vinnið meira saman. Við erum að gera nákvæmlega það, við erum að vinna meira með Evrópu og líka Kanada. Við erum hér að treysta Kanada, Grænland, Ísland, Færeyjar, Noreg, við erum að reyna að tryggja öryggi í Norður-Atlantshafi, tryggja aukið öryggi á norðurslóðum, af því að m.a. Evrópusambandsríkin vilja treysta öryggi og byggja þar upp, það er hluti af þessu. En þetta er ekki lagalega bindandi. Ég er meira en til í það að ræða meira um öryggis- og varnarmál og ég hlakka til þess að eiga það samtal og þær samræður hér inni í þessum sal við hv. þingmann.