mál ríkislögreglustjóra.
Virðulegur forseti. Ég fagna því þegar við ræðum meðferð opinbers fjár og það er mikilvægt að taka það samtal vel og gagnrýnið og málefnalega. Nú hafa verið nokkuð í fréttum málefni ríkislögreglustjóra og það er eitthvað sem heyrir undir hæstv. dómsmálaráðherra, sem er gæslumaður réttarríkisins. Án þess að fara djúpt í það hafði ég áhyggjur af því þegar ég heyrði hæstv. ráðherra vísa í skýra afstöðu almennings. Í málum eins og þessum þá hljótum við að líta til laga og reglna, en látum það liggja á milli hluta. Það koma fréttir í morgun þar sem kemur fram að ríkislögreglustjóri hafi sagt af sér að eigin frumkvæði og hæstv. dómsmálaráðherra fagnaði því mjög. En í kjölfarið er líka sagt frá því að ríkislögreglustjóri sé ráðin inn í ráðuneytið. Ríkislögreglustjóri segir af sér og er ráðin inn í ráðuneytið á sömu kjörum og ríkislögreglustjóri.
Virðulegur forseti. Getur hæstv. ráðherra aðeins útskýrt þetta, þó ekki væri nema á hvaða lagaforsendum þetta er eða hvað gerðist þarna? Þetta er það sem kemur fram frá hæstv. ráðherra. Það er erfitt að átta sig á því miðað við fréttirnar en hæstv. ráðherra er kannski með betri upplýsingar og vonandi betri upplýsingar um hvað gerðist þarna og á hvaða lagaforsendum þetta er því samkvæmt fréttum og yfirlýsingum hæstv. ráðherra þá sagði ríkislögreglustjóri af sér.