157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

mál ríkislögreglustjóra.

[16:03]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Þetta mál er allt unnið á grundvelli laga og mér finnst óþægilegt að skynja það hve lítt að sér þingmaðurinn er. Það eru tvær greinar í ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins sem fjalla um muninn á þessu tvennu; annars vegar ákvæði 36. gr. og hins vegar 37. gr. Um er að ræða flutning. (GÞÞ: Hún sagði af sér.) „Flytjist maður í annað embætti eða annað starf [ … ] skal greiða honum þann tíma sem eftir er.“ (GÞÞ: Ha?) Hún baðst ekki lausnar. Það er munur á þessu tvennu. Ég er til í öll samtöl um þetta. En ég spyr á móti: Hvernig hefði hv. þingmaður viljað fara betur með fjármuni ríkisins að þessu leyti?

(GÞÞ: Hvernig á ég að svara því?)