157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

mat á aðgerðum á Reykjanesi.

[16:07]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Friðrik Friðrikssyni fyrir ágæta spurningu. Nú er ljóst að brotið var nokkurt blað í baráttu við eldfjallavá í þeim aðgerðum sem gripið var til á Reykjanesi og má segja að þar hafi verið unnið gríðarlegt brautryðjendastarf, mjög mikilvægt, til að verja hagsmuni Íslands. Það er mjög mikilvægt að mat fari fram á því að hve miklu leyti þessar aðgerðir drógu úr því tjóni sem annars hefði getað orðið. Nú er það þannig að við rekum á Íslandi tryggingafélag sem sérstaklega hefur þennan málaflokk undir, svokallaða Náttúruhamfaratryggingu. Sú trygging byggist annars vegar á bakhjarli í ríkissjóði og hins vegar á endurtryggingu hjá alþjóðlegum aðilum. Ef við ætlum að fá viðunandi kjör til lengri tíma á endurtryggingum Náttúruhamfaratryggingar á þeirri ógn sem að íslensku samfélagi steðjar af nábýli við náttúruna þarf líka að fást viðurkenning á því hvað við getum gert til að draga úr því tjóni. Nú er nokkurn veginn fyrirséð og hv. þingmaður nefndi það í sinni ræðu hvað snjóflóðavarnargarður getur gert til að draga úr hættu af snjóflóðum en við erum hér í brautryðjendastarfi hvað varðar varnargarða vegna hraunflæðis. Það er þess vegna mjög mikilvægt fyrir okkur að sýna fram á með hvaða hætti hægt er að leggjast í til þess að gera ódýrar framkvæmdir til að varna meiriháttar tjóni svo að eðlilega sé tekið tillit til þess í kjörunum sem við njótum í endurtryggingu í framtíðinni.