mat á aðgerðum á Reykjanesi.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra innilega fyrir svarið. Það verður að segjast að það kemur mér mjög á óvart hvað kemur fram í greinargerðinni sem liggur frá viðkomandi ráðuneyti ef þetta snýst einvörðungu um tryggingamál. Það bara liggur fyrir að í minnisblaðinu stendur að ríkissjóður ætti m.a. að kanna hvort ríkissjóður eigi kröfu á viðkomandi fyrirtæki og reyndar einnig á hendur Náttúruhamfaratryggingu sem vátryggði fasteignir í Grindavík.
Ég velti fyrir mér hvort það liggi fyrir einhvers konar lagagrundvöllur sem ráðherrann er að fara með í þessa vegferð vegna þess að ég á mjög erfitt með að sjá hvar slík skoðun endar þá. Endar hún hjá öllum fyrirtækjum sem mögulega urðu svo heppin að okkur tókst að verja þau með þessum aðgerðum? Hvar endar þessi vegferð og liggur fyrir eitthvert lagalegt mat á því hvar menn vilja enda með það?