157. löggjafarþing — 30. fundur, 10. nóv. 2025.
framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.
102. mál
Virðulegur forseti. Mér þykir leitt að þurfa að leiðrétta hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hvað varðar samstöðuna hérna í þingsal. Þetta þingmál hefur vissulega tekið mjög jákvæðum og góðum breytingum í þinglegri meðferð en eftir standa þó nokkrir þættir sem full ástæða er til að hafa varann á og því mun þingflokkur Miðflokksins sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.