157. löggjafarþing — 30. fundur, 10. nóv. 2025.
meðferð sakamála o.fl.
103. mál
Frú forseti. Það er ánægjulegt að sjá þetta mál verða hér að lögum með yfirgnæfandi stuðningi þingheims. Um er að ræða mikilvægt mál. Hér erum við að herða tökin á skipulögðum glæpahópum með markvissum aðgerðum og færa löggæslu og ákæruvaldi og Íslandi hliðstæð verkefni við það sem tíðkast í nágrannaríkjum okkar. Allir flokkar sem taka því verkefni alvarlega að standa í markvissum aðgerðum gegn skipulagðri glæpastarfsemi greiða atkvæði með. Svo einfalt er það.