157. löggjafarþing — 30. fundur, 10. nóv. 2025.
húsaleigulög.
108. mál
Forseti. Tilgangur og markmið þessa frumvarps er sagt vera að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda en líkt og umsagnir benda á þá mun það markmið ekki nást með þessu frumvarpi heldur hafa þveröfug áhrif. Í því ljósi velti ég fyrir mér, ef þetta verður samþykkt hér á eftir, hvort aldrei eigi að taka tillit til umsagna því það er alveg á hreinu að tilganginum verður ekki náð og því greiði ég atkvæði gegn þessu frumvarpi.