157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[16:21]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði um mjög gott mál, um breytingu á húsaleigulögum, mikilvægt mál sem skiptir samfélagið miklu máli. Það snýst um skráningarskyldu leigusamninga og breytingar á leiguverði sem ég tel að muni styðja mjög við leigumarkaðinn. Ágætt er að rifja aðeins upp hvað stendur í lögum í dag en í dag er sem sagt óheimilt að breyta leiguverði á leigusamningum sem gerðir eru til skemmri tíma en 12 mánaða. Þetta eru breytingar sem voru gerðar áður. Nú er verið að stíga það skref að tryggja að breytingar verði ekki gerðar á fyrstu 12 mánuðunum sem skiptir miklu máli fyrir leigjendur, fyrir þá sem eru í þeirri stöðu að vera á þessum stað. Ég fagna því að við séum að fara að greiða atkvæði um þetta. Þetta skiptir miklu máli fyrir okkur öll.