húsaleigulög.
Frú forseti. Við gætum vissulega tekið upp skráningarskyldu klósettferða til að leggja mat á afkastagetu frárennsliskerfa. Það myndi bara ekki gera neitt raunverulegt gagn, ekki frekar en sú breyting sem hér er lögð til. Þetta er ofboðslegt skrifræðis- og forsjárhyggjumál. Mér þykir þetta með eindæmum. Ég var að vona að þetta myndi deyja með fyrri ríkisstjórn en þetta flýtur upp hér aftur. Áhrifin verða þau að íbúðum á markaði mun fækka en ekki fjölga. Áhrifin verða jafnframt þau, eins og hv. þm. Grímur Grímsson kom inn á áðan, að það verður verðbólguálag á nýjum samningum. Það getur ekkert annað gerst en að sú verði raunin. Það að ná fram einhverju markmiði sem ekkert gagn er að með slíkum tilkostnaði er hreinlega alveg óskiljanlegt. Ég mun greiða atkvæði gegn þessu máli.