húsaleigulög.
Frú forseti. Ég ætla aðeins að ræða þetta mál, 108. mál, um húsaleigulög. Ég hef hér í þinginu flutt nokkrar ræður um þetta mál. Eitt lítið atriði mun hafa veruleg áhrif á leigjendur, sem eru í raun þeir sem ég kem hingað upp til að verja. Þetta mál mun leggja auknar byrðar á leigjendur. Við frysta leigu í 12 mánuði mun upphafsleiga hækka. Leigusalar munu gera ráð fyrir ófyrirséðum kostnaði, verðlagsbreytingum og öðru slíku strax inni í leiguverði. Þetta hefur sagan sýnt okkur. Þetta sýna rannsóknir okkur og reynslan núna frá Barcelona um daginn. Þar hrundi leigumarkaðurinn. Þetta hefur gerst í Stokkhólmi, þetta gerist alls staðar þar sem menn ætla að frysta verð og handstýra verði. Leigumarkaðurinn mun að einhverju leyti hrynja og leiga mun hækka. Þess vegna mun ég greiða atkvæði gegn þessu frumvarpi.