157. löggjafarþing — 30. fundur, 10. nóv. 2025.
húsaleigulög.
108. mál
Frú forseti. Ég segi já við þessu frumvarpi enda er um verulega gott og mikilvægt mál að ræða. Skráning leigusamninga mun hafa jákvæð áhrif. Við náum betri mynd af markaðnum og vitum hvaða eignir eru til boða á leigumarkaði. Þetta mun auka verðstöðugleika. Þetta hefur áhrif á mælingar og svo margt fleira. Þetta mun bæta stöðu leigjenda og það er gríðarlega mikilvægt fyrir fólk að búa við meiri stöðugleika og meiri búsetufestu. Þetta mun bæta þeirra hag, þannig að ég segi já.