157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

fjöleignarhús.

107. mál
[16:46]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég hef mælt fyrir breytingartillögu í þessu máli sem verður borin hér til atkvæða. Ég hvet alla þingmenn til að styðja það sem vilja framgang málsins í einhverri sátt. Mönnum er tíðrætt hér í þessum þingsal um mikla sátt og að það þurfi að ná sátt. Ég held að breytingartillögur sem ég hef mælt fyrir séu til þess fallnar að ná sátt meðal hunda- og kattaeigenda og þeirra sem ekki eiga hunda og ketti í fjöleignarhúsum. Vandinn hins vegar við atkvæðagreiðslu hér á eftir er sá að fyrst verður borin upp frávísunartillaga í málinu. Mér er nú vandi á höndum, hvort ég eigi að styðja hana þar sem ég veit ekki hvernig atkvæðagreiðslu í mínu máli mun lykta. Ég hef tilhneigingu til að styðja málið með þeim breytingum sem ég hef mælt fyrir, en mun haga atkvæðagreiðslu minni á einhvern þann veg sem gæti þjónað breytingartillögunum í heild.